Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1952, Side 13

Frjáls verslun - 01.06.1952, Side 13
AÐALFUNDUR VERZLUNARRAÐS ISLANDS Aðalfundur Verzlunarráðsins var haldinn hér í Reykjavík, dagana 12. og 13. júní s.l. Nýtt fyrirkomu- lag var viðhaft á kosningu til stjórnar ráðsins nú í fyrsta sinn, samkvæmt breytingum, er gerðar voru á lögum þess á s.l. vetri. Er stjórn V.I. nú þannig skipuð: a) Fulltrúar í stjórn ráðsins tilnefndir af sér- greinafélögum innan þess: Eggert Kristjánsson, Egill Guttormsson, Gunnar Friðriksson, Ilans Þórðarson, Henrik Biering, Hjörtur Jónsson, ísleifur Jónsson, Karl Þorsteins, Óli J. Ólason og Stefán -Thorarensen. b) Kosnir fulltrúar: Gestur Jóhannsson, Seyðis- firði, Guðmundur Guðjónsson, Rvík, Gunnar E. Kvar- an, Rvík, Matthías Sveinsson, Isafirði, Othar Ellingsen, Rvík, Sigurður B. Sigurðsson. Rvík, og Tómas Björns- son, Akureyri. Á fundi stjórnar Verzlunarráðsins, sem haldinn var 16. júní, voru eftirtaldir menn kosnir í framkvæmda- stjórn: Eggert Kristjánsson, formaður, Henrik Bier- ing, varaformaður, og meðstjórnendur þeir Egill Gutt- ormsson, Hjörtur Jónsson, ísleifur Jónsson. Othar Ellingsen og Tómas Björnsson. Hér fara á eftir tillögur og ályktanir. sem samþykkt- ar voru á aðalfundinum. Jafnvirðiskaup. Aðalfundur V. í. 1952 er þeirrar skoðunar, að það sé þjóðinni affarasælast, að utanríkisviðskiptin grund- vallist á frjálsum gjaldeyrisviðski])tum. Eundurinn viðurkennir engu að síður, að nauðsyn geti verið á viðskiptum á grundvelli jafnvirðiskaupa undir vissum kringumstæðum. Fundurinn telur nauðsyn að benda á, að reynslan af jafnvirðiskauj)um sýnir, að sum atriði samninga hafa verið illa haldin, erfiðleikar orsakazt af óeðlilega löngum afgreiðslufresti, ónákvæmni í afgreiðslum, ó- hagstæðu verði og fleiru. Telur fundurinn, að hinu opinbera sé skylt að beita áhrifum sínum betur en verið hefur til að gera þessi viðskipti hagkvæmari og aðgengilegri, m. a. með því að auðvelda innflytjendum greiðslur með ábyrgðum í sambandi við slík jafnvirðiskaup, enda gildi sömu reglur gagnvart öllum clearing-löndum. Ennfremur lítur fundurinn svo á, að sjálfsagt sé að tryggja fyrir fram hjá Eimski])afélagi íslands, að allar þungavör- ur, sem keyptar eru á þessum grundvelli, fáist sendar áfram á sama flutningsgjaldi á hinar ýmsu hafnir, er skip Eimski])afélagsins sigla á. Samrœming frílista. Aðalfundur V. I. 1952 telur, að reynslan hafi fært sönnur á, að frílistinn og bátalistinn séu þannig ,úr garði gerðir, að nauðsyn beri til, að þeir verði báðir teknir til endurskoðunar með það fyrir augum að sam- ræma ýms atriði, sem valda miklum örðugleikum í framkvæmd, en hafa hins vegar litla og sumpart enga gjaldeyrislega þýðingu. Fundurinn beinir því til Fjárhagsráðs, að slík heild- arendurskoðun á báðum listunum verði látin fara fram í samráði við heildarsamtök verzlunarstéttarinnar, Verzlunarráð Islands, og samtök þeirra innflytjenda, sem hlut eiga að máli. Tryggingarféð. Aðalfundur V. I. 1952 beinir þeirri áskorun til ráð- herra þess, sem fer með bankamál, að hann hlutist lil um, að gerðar verði hið bráðasta ráðstafanir til að létta af innflytjendum þeim mjög svo fjárfreku kvöð- um, sem greiðsla tryggingarfjár í sambandi við opn- un ábyrgða og öflun greiðsluheimilda leggur innflvtj- endum á herðar. Fundurinn væntir þess, að ráðherra hlutist til um. að meðan núverandi fyrirkomulag helzt. verði innláns- vexlir greiddir af tryggingarfé, sem innflvtjendur greiða bönkunum. Ennfremur væntir fundurinn þess, að sparisjóðsinnistæður verði teknar til greina sem fullgildar tryggingar. Rekstrarf j árþörfin. Aðalfundur V. 1. 1952 ítrekar samþvkkt aðalfund- arins árið 1951 um, að ríkisstjórnin hlutist til um, að’ fullnægt verði eðlilegri rekstrarfjárþörf verzlunar og iðnaðar. Ástandið í þessum efnum fer mjög versnandi, eins og kunnugt er, enda hafa kröfur um tryggingarfé í sam- bandi við opnun ábyrgða og öflun greiðsluheimilda verið stórlega auknar á árinu. Iðnaður. Fundurinn beinir því til ríkisstjórnarinnar, að gerð- ar séu Jiegar í stað ráðstafanir til verndar öllum nauð- FdlJÁLS VERZLUN 65

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.