Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1952, Page 20

Frjáls verslun - 01.06.1952, Page 20
Rithöfundurinn, Agatha Christie, er gift fornleifa- fræðingi. Hún hefur sagt, að menn í þeirri stöðu séu beztu eiginmenn í heimi, því eldri sem konurnar eru, því meiri áhuga hafa þeir á þeim! Gakktu, aldrei á rnála hjá óréttlœtinu. CHRISTEN BERG. • „Konan mín er dásamleg,“ gortaði maður nokkur við kunningja sinn. „Einn veturinn prjónaði hún sokka handa mér úr gömlum baðfötum, sem hún átti, og nú er hún að prjóna sér baðföt úr gömlum sokkum, er ég 0111.“ Það er ómögulegt jyrir konu að vera gijt sama manránum í 50 ár, því að eflir fyrstu 25 áriri er hann ekki sami ma&urinn. READER’S DIGEST. íri kom þjótandi inn í bjórstofu og kallaði til veit- ingamannsins: „Bjórkrús, fljótt, áður en uppþotið byrjar.“ Hann drakk bjórinn í botn og sagði síðan: „Ann- an bjór, áður en uppþotið hefst.“ Hann hafði drukkið síðari bjórkrúsina til hálfs, þegar veitingamaðurinn spurði: „Hvaða uppþot ?“ „Ég á enga peninga til að borga bjórinn með,“ svaraði írinn. Það er gjörsamlega ómögulegt að vera ástjanginn og skynsamur á sarna tíma, BACON. Eiginkonan: „0, Jón, konan í næsta húsi hefur eign- azt nákvæmlega eins hatt og minn nýi!“ Eiginmaðurinn: „Og ég geri þá ráð fyrir, að þú viljir kaupa þér annan nýjan?“ Eiginkonan: „Já, það er ódýrara en að fá sér nýja íbúð“. Læknirinn: „Hvernig stendur á því, að talan 8112 er tattóeruð á bak þitt?“ Sjúklingurinn: „Það er ekki tattóerað, heldur er það frá því, þegar bíllinn, sem konan mín ók, lenti á mér, á meðan ég hélt hurðinni á bílskúrnum opinni.“ Mátturinn í gájurn manns sýnir sig i því gagni, sern máður hefur af þeim. GOETHE. • Sex ungar eiginkonur, er bjuggu í sama húsinu, lentu í hatrammri deilu, sem lyktaði með því að þær voru allar kallaðar fyrir dómarann. Er málið var tekið fyrir, þutu þær allar í einu uj)p að dómgrind- unum og hófu kveinstafi sína fyrir dómaranum. Dómarinn sat eitt augnablik ringlaður af hávaðan- um í eiginkonunum sex, er þær sakfelldu hver aðra. Skyndilega barði hann snöggt í borðið og bað um hljóð. Þegar kyrrð var komin á, sagði hinn þolinmóði dómari rólega: „Nú vil ég heyra í þeirri elztu fyrst.“ Málinu lauk þar með. Hræsnin er löstur, er iiðhyllist dyggðina. LA ROCHEFAUCALD. „Frjáls Verzlun44 Útgejandi: Verziunarmannafélag Reykjavíkur. Formaður: Guðjón Einarsson. Ritstj.: Gunnar Magnússon og Njáll Símon- arson. Ritnefnd: Birgir Kjaran, form., Einar Ásmunds- son, Geir IJallgrímsson, Gunnar Magnússon og Njáll Símonarson. Skrifstofa: Vonarstræti 4, 2. hæð, Reykjavík. Sími 5293. BORGARPRENT 72 FRJÁLS verzlun

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.