Frjáls verslun - 01.08.1954, Page 5
Ljosasktiti Regnhf'fabúSarínnar var ciff af fyrstu viSfangsefminum.
Ný tslenzk framleiðslugrein:
N E O N -1 j ósaskilti
Utanhússkreyting verzlanna hér í Reykjavík
hefur til skamms tíma verið æði fábrotin. Ein-
staka fyrirtæki hafa lagt í þann kostnað að
kaupa erlendis frá ljósaskilti með nafni fyrir-
tækisins, en allflest hafa lítið skeytt um iitlit
verzlunarhúsanna eftir að dimma tekur.Þó erþað
staðreynd, að gott ljósaskilti dregur athygli veg-
farandans að nafni fvrirtækisins eða þeim vör-
um, sem það hefur upp á að bjóða. Erlendu Ijósa-
skiltunum fylgdi sá böggull skammrifi, að þau
biluðu oft í hamhleypum íslenzku veðráttunnar,
og reyndist tíðum erfitt að afla nauðsynlegra
varahluta til þeirra. Var svo komið, að þau voru
í minna eða meira ólagi, þegar þeirra var mest
þörf.
Haustið 1952 hóf ungur maður, Karl Karlsson,
rafmagnsfræðingur, sonur Karls Guðmundsson-
ar, fvrrv. skipstjóra, að framleiða NEON-ljósa-
skilti, eftir að hafa kynnt sér þessháttar fram-
leiðslu erlendis. Er hér um að ræða nýja innlenda
atvinnugrein. Fyrirtæki sitt nefnir Karl NEON
og hefur það aðsetur að Oldugötu 4 hér í bæ.
Karl lauk prófi í rafvélavirkjun liér heima
og gerðist meðeigandi í H. f. Segul, en árið 1947
fór hann utan til Danmerkur til náms í raf-
magnsfræði. Samhliða námi sínu þar í landi lærði
Karl framleiðslu Neon-Ijósaskilta, og kynnti sér
þessa. framleiðslu einnig í Þýzkalandi og Austur-
ríki. Að loknu fjögurra ára námi kom Karl heim
aftur, starfaði sem verkstjóri hjá Rafmagns-
veitum ríkisins um skeið, en fékkst við að búa
til Neon-Ijósaskilti í frístundum sínum. Bjó
Karl sjálfur til allflest tæki og áhöld, er þurfti
að nota við framleiðsluna, en þau eru marg-
brotin og flókin í augum leikmannsins. Utheimtir
smíði þeirra mikla nákvæmni. Er þar m. a. há-
spennubreytir fvrir 10 þúsund volta rafstraum,
en hann er notaður til að' dæla lofti úr gler-
pípunum, áður en þær eru fylltar með Neon-
gasi. Aður en það er gert, eru glerpípurnar hit-
aðar og beygðar eftir þar til gerðum teikningum
af ljósaskiltinu. Þegar búið er að fylla stafina
með Neon-gasi og ganga frá rafskautum, er
þeim komið fyrir á þar til gerðum bakstykkjum
FRJÁLS VERZLUN
81