Frjáls verslun - 01.06.1958, Page 9
á dúkum úr silki og gerviefnum, sem ég álít, að
við Tslendingar ættum sérstaklega að gefa gaum.
Er ekki þéttbýlið mikið þarna?
Jú, svo mikið, að erfitt er að gera sér fulla
grein fyrir því. Japan er alls ca. 368.000 fer-
kílómetrar, en af því eru aðeins 14% ræktan-
legt land. Jbúarnir eru hins vegar yfir 90 millj.,
eða um 1747 per km2 af ræktanlegu landi. Það
liggur því í augum uppi, að íbúarnir hafa orðið
að finna sér annað til lífsviðurværis en land—
búnað. Hafa þeir einkum lagt áherzlu á alls
konar iðnað og fiskveiðar. Þess má geta hér, að
Japanir eru langmesta fiskveiðiþjóð í heiminum.
Veiztu hvaða jisktegundir þeir veiða helzt?
Já, aðal-fiskstofnarnir eru þorskur, lax, silung-
ur svo og ýmsir krabbar við Norður-Japan, en
sardínur, túnfiskur og fleiri tegundir við Suður-
Japan. Auk þess veiða Japanir mikið af hval
í hafinu kringum Suðurheimskautslandið. Þeir
flytja töluvert út af fiskafurðum, t. d. niður-
soðinn túnfisk, sem þeir selja í stórum stíl til
Bandaríkjanna.
Ilvað gætir þú sagt okkur um landið og íbúana?
Eg hafði því miður allt of lítinn tíma til þess
að kynnast landinu eða íbúunum. En það, sem
ég sá af Japan, þótti mér mjög tilkomumikið.
Japan er hálent og landslagið og gróðrarfarið
Hér sjáum við hið helgasta íjall Japans, Fuji fjallið, sem er
ekki allfjarri Tokíó.
Sýnishorn af nýtízku sjónvarps- og útvarpstækjum o. fl. sem
Japanir framleiða í stórum stíl.
er mjög fjölskrúðugt. Ég varð svo frægur að
komast til hins helga fjalls þeirra, Fuji, og er
ekki ofsögum sagt af fegurð þess. Af íbúunum
hef ég ekki nema gott eitt að segja. Japanir
eru mjög alúðlegir, og kurteisin er þar í há-
vegum höfð. Fljótt á litið virðist hagur al-
mennings sæmilegur, en þó á engan hátt sam-
bærilegur við lífskjör okkar hér, enda erfitt
saman að jafna, þar sem fólk þar eystra er ótrú-
lega nægjusamt og virðist ánægt með sinn hlut,
þótt lítill sé. Það var að sjá, að nóg væri af
vörum í verzlunum, bæði innlendum og útlend-
um, en ekki veit ég, að hve miklu leyti al-
menningur getur notað sér það úrval.
Ilvað leið jórstu lieim?
Eg fór frá Tokyo til San Francisco, en á
þeirri leið er ýmist farið um Anchorage, Alaska
og Seattle, eða flogið beint með viðkomu í
Hawaii. Eg valdi nyrðri leiðina, því að ég á
kunningja í Seattle, sem ég vildi heimsækja.
Þess má geta til gamans, að á þessari leið er
flogið yfir „alþjóðatímalínuna“ og græddist mér
við það einn sólarhringur. Við lögðum af stað
að kvöldi 5. maí, en komum til Seattle um 20
tímum seinna. Þá var enn 5. maí samkvæmt
almanakinu, en eftir þeim útreikningi hafði ég
verið mínus 4 tíma á leiðinni! En þetta var þó
ekki „hreinn gróði“, því að ég hafði tapað jafn-
miklu á fluginu austur um frá íslandi.
FRJÁLS VERZLUN
9