Frjáls verslun - 01.06.1958, Qupperneq 22
18 km um sléttlendi. Gætu þeir orðið eins konar
efnahagsleg heild og myndu tengjast Eyrar-
bakka og Stokkseyri, ef byggð yrði brú yfir
Ölfusárós. Ef vegur yrði svo lagður til Þorláks-
hafnar í framhaldi af veginum um Þrengslin,
yrði leiðin milli Eeykjavíkur og Þorlákshafnar
um 50 km.
Seljoss er líklegur til að vaxa töluvert enn
um skeið, fyrst og fremst með aukningu þeirra
atvinnugreina, sem þar eru nú.
Erlent fjármagn
Til þess að stuðla að þeirri þróun, sem rætt
hefur verið um hér að framan, þarf að veita
fjármagni kerfisbundið á ákveðna staði, en að-
eins fyrst í stað, því að ef t. d. val Akureyrar,
Egilsstaða og Reyðarfjarðar og Þorlákshafnar,
sem framtíðarborga, er rétt, þá munu venjuleg
efnahagslögmál sjá fyrir viðgangi þeirra. I sam-
bandi við þá þrjá staði, sem hér er minnzt á
hefur verið talað um nauðsyn þess að fá erlent
fjármagn til þess að uppbyggingin leiði til borg-
armyndana áður en mjög langt um líður, en
þetta atriði þarf þó að athuga nánar.
Það er útbreiddur misskilningur, að Islend-
ingar þurfi ekki annað en láta það boð út ganga,
að þeir vilji hleypa erlendu fjármagni inn í land
sitt, þá muni fjöldi fyrirtœkja bjóða fram fé og
þekkingu til framlcvœmda. Islenzku fossarnir
eru góðir, en þó er þess ekki að vænta, að um
orku þeirra verði barizt af mikilli hörku. Sér-
staklega yrði erfitt að fá fyrsta fyrirtækið til að
hefja framkvœmdir, þar sem engin reynsla er
af viðskiptum við Islendinga á þessu sviði. En
mœti sá, er ísinn brýtur, sanngirni og velvilja,
má búast við, að fleiri komi á eftir.
A fleiri stöðum á landinu en hér hafa verið
nefndir, þurfa að blómgast kauptún og bæir, og
verður þeim mun auðveldara að stuðla að því,
sem fólkinu fjölgar meira. En aðalatriðið er, að
menn geri sér ljóst, að það er fyrst og fremst
þéttbýlið sem veldur „jafnvægi“ eða „jafnvægis-
leysi“ í byggðinni, og ef það skipast vel munu
hinar dreifðu byggðir njóta góðs af. Að lokum
mun nú sýnd, til gamans, tafla með hugsanleg-
um íbúafjölda í bæjum og borgum landsins árið
2000. Innan sviga eru tölur frá manntalinu 1.
des. 1956. Auðvitað er þetta hugarflug, sem
erfitt er að rökstyðja, en það ætti þó að geta
orðið mönnum til umhugsunar um hver þróunin
muni verða.
Árið 2000 1. des. '56
Reykjavík, Hafnarfj. og nágr. 165 (77.777)
Keflavík og Njarðvíkur.......... 7 (4.974)
Akranes ........................... 6 (3.472)
llif, Hellissandur og Ólafsvík .. 3 (974)
ísafjörður ........................ 4 (2.671)
Sauðárkrókur ...................... 2 (1.075)
Siglufjörður................... 3 (2.756)
Ólafsfjörður ...................... 1 (896)
Akureyri ......................... 33 (8.158)
Húsavík........................ 3 (1.364)
Seyðisfjörður.................. 1 (708)
Búðareyri, Egilsstaðir og Eskifj. 11 (1.325)
Neskaupstaður ..................... 2 (1.340)
Vestmannaeyjar................. 6 (4.224)
Selfoss ........................... 3 (1.411)
Þorlákshöfn, Hveragerði
Eyrarbakki og Stokkseyri .... 22 (1.526)
Samtals 272 (114.651)
Kauptún yfir 300 íbúa .............. 23 (12.948)
Sveitir og kauptún undir 300 íb. 55 (35.101)
Mannfjöldi alls 350 (162.700)
Mörgum mun sjálfsagt finnast, að ef byggð-
in á eftir að skipast eitthvað í samræmi við
þetta hugarflug, þá yrði um lítið eða ekkert
meira „jafnvægi“ í byggðinni að ræða en nú er.
Það er sennilega rétt, en ef menn ætla með
lagasetningu eða valdboði að þvinga mikið af
atvinnutækjum á þá staði, þar sem þau geta
ekki þróazt eðlilega, þá mun þjóðin verða fyrir
stórfelldu tjóni og lífskjör almennings verða mun
rýrari, en ella hefði orðið. Og er nokkur sá valda-
maður til, að hann treysti sér til að bera ábyrgð
á slíku? Á hinn bóginn virðist augljóst, að tak-
ist ekki að stuðla að myndun borga í landinu,
annarra en Reykjavíkur, þá muni meginhluti
þjóðarinnar búa í höfuðborginni, áður en mjög
langur tími er liðinn. Efnahagslega séð gæti
slíkt sjálfsagt gengið, en það myndi án efa hafa
ýmis mjög óæskileg áhrif á þjóðlífið og gæti
haft hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir fram-
tíð íslenzku þjóðarinnar, ef til stórstyrjaldar
kæmi eða borgin yrði fyrir áföllum af völdum
náttúruhamfara.
22
FRJÁLS VERZLUN