Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1958, Síða 25

Frjáls verslun - 01.06.1958, Síða 25
Ludwig Erhard . . .rramh. ai bis. 12 dagur gerbyltingu í lífi mínu. Þá áræddi ég að reyna að gera kenningar mínar að veruleika.“ Og það skeði með þeim hætti, að Ludwig Erhard gekk þenna sunnudag að hljóðnemanum og tilkynnti þýzku þjóðinni, að hann hefði gei'ið út tilskipun um afnám skömmtunar, verðlagseftir- lits og fleiri viðskiptahafta. Hann lýsti því vfir, að frá þessum tíma væri D-markið eini skömmt- unarseðillinn í landinu. Þessi yfirlýsing kom mjög á óvart bæði innanlands og utan, því að þetta var á þeim tíma, er Þjóðverjar áttu að fá skammtaða eina skó á tveggja ára fresti, og ann- að eftir því, og sjálfir sigurvegararnir, Bretar og Frakkar, bjuggu enn við stranga skömmtun og verðlagshöft. Sagan segir, að Clay hershöfðingi, yfirmaður hernámsliðsins í Þýzkalandi, hafi kvatt Erhard á sinn fund, er liann frétti þetta, og sagt við hann: „Dirfizt þér að breyta fyrir- mælum herstjórnarinnar í efnahagsmálunum?“ Þá á Erhard að hafa svarað: „Ég hef ekki breytt þeim, ég hef afnumið þau.“ Clay á þá að hafa bætt við: „Efnahagsmálaráðunautar mínir telja þetta óráð,“ og Erhard á að hafa svarað: „Mínir efnahagsmálaráðunautar telja það líka.“ Hvað sem hæft er í þessu, lét herstjórnin málið kyrrt liggja, og Erhard fór sínu fram. Nú reyndi á „skyggnigáfu“ Erhards, framsýni hans og hæfileika til þess að geta sér til um framvindu efnahagslífsins. Hann reiknaði með, að duldar vörubirgðir myndu korna á markað- inn við afnám skömmtunar og verðlagseftir- lits og brúa bilið, sem framleiðslan ykist af völdum hinnar frjálsu verðmyndunar. Þetta rættist, og þar með var fyrstu hættunni bægt frá. Síðan rak hver atburðurinn annan. Þegar dýrtíðin var sem mest 1948, boðaði Erhard, að verðlag inyndi lækka á næstu árum. Arið 1951 kom Kóreustyrjöldin, og verðlag hækkaði enn, en Erhard fullyrti, að verðbólgan myndi senn hjaðna, og vorið 1952 var hún yíirunnin. Árið 1949 voru tvær milljónir atvinnuleysingja í Þýzkalandi, en Erhard lofaði, að atvinnuleysið skyldi minnka. Árið 1950 voru engir atvinnu- leysingjar skráðir. Árið 1951 var iðnaðarfram- leiðslan minnkandi, en Erhard fullyrti, að hún myndi senn vaxa, og það skeði þegar seinni hluta sama árs. Árið 1949 var Erhard mjög gagnrýndur af andstæðingum sínum fyrir liall- ann á utanríkisverzluninni. Erliard taldi vonir standa til, að hallinn myndi hverfa, og 1952 var verzlunarjöfnuðurinn orðinn hagstæður. Ymsar fleiri staðreyndir í töluformi gefa til kynna hina margslungnu þætti „þýzka krafta- verksins“, og skulu hér aðeins fáeinar nefndar: Árið 1948 var tala starfandi verkamanna í Þýzkalandi 13,5 milljónir, en 1952 var tala þeirra orðin 15,0 milljónir. Árið 1949 nam mánaðar- legur meðalútflutningur Þýzkalands 345 milljónum DM„ en 1952 var hann kominn upp í 1400 milljónir DM. íbúðabyggingar voru árið 1949 215 þús., en 1952 440 þús. Vísi- tala iðnaðarframleiðslu óx frá 1950 úr 100 í 199 árið 1956. Á sama tíma óx iðnaðarfram- leiðsla Bretlands aðeins úr 100 í 123 vísitölustig og Bandaríkjanna úr 100 í 130. Nettótekjur launþega voru í Þýzkalandi árið 1950 34,0 mill- jarðar DM, en 1955 60,9 milljarðar DM. Þannig mætti lengi halda áfrarn að rekja einstaka þætti „kraftaverksins”, sem að áliti Erhards var þó hreint ekkert kraftaverk. Hann kemst þannig að orði: „Það, sem skeð hefur í Þýzkalandi síðustu níu árin, var víðs fjarri því að vera kraftaverk. Það var aðeins árangur lieiðarlegs átaks heillar þjóðar, sem hlotið hefur aftur frelsi til þess að hagnýta mannlegt framtak og atorku. Ef þetta átak á að þéna öðrum þjóðum, sem fyrirmynd, þá getur það aðeins gert það með því að vera öllum heiminum ábending um blessun persónulegs og efnahagslegs frelsis.“ En kraftaverkið skeði ekki af sjálfu sér, og Ludwig Erhard var heldur ekki einn höfundur þess ævintýris. Það þurfti fyrst og fremst að skapa nýtt andrúmsloft í þjóðfélaginu, eða eins og Erhard orðaði það: „Það stafar ekki af léttúðugri bjart- sýni, heldur öruggum vilja, þegar maður skap- ar í stjórnmálunum það andrúmsloft, sem leiðir til efnahagslegs árangurs.“ Þetta andrúmsloft lýðræðislegrar þjóðfélagsskipunar og pólitískrar ábyrgðar skapaði Konrad Adenauer kanslari. Erhard og félagar hans voru hins vegar hugsjóna- smiðir og aflgjafar „kraftaverksins“. Tveir aðal- gerendur í kraftaverkasögunni auk Erhards voru þeir Fritz Scháffer fjármálaráðherra, sem tókst að koma á hallalausum ríkisbúskap, og dr. Wilhelm Vocke aðalbankastjóri „Bank der deutschen Lánder“, en hann hefur átt livað drýgstan þátt í að tryggja stöðugt verðgikli D-marksins og afla því þess trausts, er það nýtur á alþjóðamarkaðnum. FRJÁLS VERZLUN 25

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.