Frjáls verslun - 01.10.1958, Síða 1
FRÁ REYKJAVÍKURHÖFN:
Gamlar veiðiaðferðir og
nýtízku atvinnutæki
Ljósm.: Gunnar Rúnar
í ÞESSU HEFTI:
GUÐLAUGUR ÞORVALDSSON:
Heimsókn í þýzku hagstofuna
★
Samvinnufélögin í Svíþjóð
★
GUNNAR GUÐJÓNSSON:
Við verðum að hefja
nýsköpun á nýjan hátt
★
OSCAR CLAUSEN:
Verzlunarminjasafn Islands
★
Kassagerð Reykjavíkur
og umbúðaiðnaðurinn
★
Aðalfundur Verzlunarráðs
íslands 1958
★
Landssamband íslenzkra
verzlunarmanna (L.I.V.)
★
o. m. fl.
FRJÁLSVERZLUN
Útg.: Frjáls Verzlun Útgáfufélag h/f
Ritstjóri:
Pétur Pétursson
Ritnejnd:
Birgir Kjaran, formaður,
Gunnar Magnússon, Valdimar Kristinsson
Stjóm útgáfufélagsins:
Birgir Kjaran, formaður,
Gunnar Magnússon, Pétur Sæmundsen,
SigTjrliði Kristjánsson, Þorv. J. Júlíusson
Skrifstofa:
Skólavörðustíg 3, 3. hæð
Sími 1-90-85 — Pósthólf 1193
VÍKINGSPRENT.
FRJÁLS
VERZLUN
18. ÁRGANGUR — 3. HEFTI — 1958
Erfiðleikar og úrrœði
Það getur vart lengur verið deiluejni, að við erfiðleika er
að etja í íslenzlcu efnahagslífi. Erfiðleikar þessir hafa alllengi
verið fyrir hendi, en virðast nú á haustmánuðunum fara ört
vaxandi. Menn hefur greint á um, hvort til væru „varanleg
úrrœði“ í vandamálum þeim, er steðjað hafa að atvinnu-
lífi þjóðarinnar, eða eklci. Þeim fer vafalítið fjölgandi, sem
viðurkenna þau gamallcunnu sannindi, að engin varanleg
lausn er til á þeim margháttuðu vandamálum, sem stöðugt
leita á í þjóðarbúskap, sem ekki er staðnaður, Jieldur í lát-
lausri framþróun. Hitt mun sanni nær, að menn geta nú
orðið farið að tala um „varanlega erfiðleika“ í efnahagslífi
þjóðarinnar.
Þessir erfiðleiJcar eru á ytra borði tvíþættir: verðbólga og
sJcortur á erlendum gjaldeyri. Frá því skömmu eftir síðari
heimsstyrjöld hefur þjóðina árlega vantað nokkur Jiundruð
milljónir ísl. króna. í erlendum gjaldeyri til þess að geta greitt
með erlenda þjónustu og varning. Þetta bil milli gjaldeyris-
öflunar og gjaldeyrisþarfa Jiefur verið brúað með lánum,
gjöfum, aðstoð o. s. frv.
A hinn bóginn hefur svo verðbólgan þrammað áfram sína
braut með fullum þunga, en þó mismunandi stórum skref-
um.
Bœði eru þessi fyrirbæri greinar, sprottnar upp af sömu
rót. Þjóðin Jiefur Jifað um efni fram: of miklu hefur verið
eytt, of lítið Jiefur verið framleitt, of mikið fé hefur verið
fest, of lítið hefur verið sparað.
Eðli og orsakir erfiðleikanna eru augljósar. Úrræðin kunna
að verða torfundnari. Þeir, sem teJcið hafa á sig þá ábyrgð
að stjórna þjóðinni, atvinnumálum hennar, fjármálum og
peningamálum, þurfa að hafa Jiugkvæmni til að bera við lausn
vandamálanna og Jcjark til þess að standa við úrrœði sín, enda
þótt þau kunni að verða misjafnlega vinsæl. En þess ættu úr-
rœðasmiðirnir að vera minnugir, að frumskilyrði þess, að lausn
Frh. á bls. 12