Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1958, Side 10

Frjáls verslun - 01.10.1958, Side 10
Oscar Clausen: Verzlunarminjasaln íslands Á síðasta írídegi verzlunarmanna ílutti Oscar Clausen rithöfundur athyglisvert erindi í útvarpið um verzl- unarminjasafn. Er það birt hér með leyfi höfundar. Á síðustu áratugum, eða síðan laust eftir alda- mótin síðustu, hefur, sem kunnugt er, orðið gagn- gjörð bylting í öllu atvinnulífi íslenzku þjóðar- innar. — Það gamla var orðið úrelt, og nýr tími hefur tekið völdin. — Þrátt fyrir það, að svona er komið, er mikils um vert, að þær minjar, sem til eru frá fyrri öldum hér á landi viðvíkjandi forn- um atvinnuháttum, og þá sérstaklega íslenzkri verzlun, séu varðveittar og ekki látnar fara for- görðum, heldur sé þeim safnað saman á einn stað á verzlunarminjasafni. Og væri þá eðlilegast að verzl- unarstéttin gangist fyrir þessu nauðsynjamáli. Frá því að ég var fyrst við afgreiðslu í búð árið 1Q03, hafa breytingar orðið ótrúlega örar. — Hinar stóru, gömlu kaupmannaverzlanir víðs vegar um land eru liðnar undir lok, — verzlanirnar, sem höfðu allar tegundir varnings, — allt frá grænsápu í silki- kjóla, — á boðstólum og tóku jafnhliða allar íslenzk- ar afurðir sem gjaldeyri. — Nú koma bændurnir ekki lengur með skinnskjóður undir kaffibaunir og kandíssykur, — og þegar ég man fyrst eftir, var enginn bréfpoki notaður í verzluninni, sem ég vann við, og var hún þó allstór. — Þá voru líka einungis notaðar gamlar skálavigtir og lóð, en rafmagnsvigt- ir þekktust ekki. — Svona mætti margt telja. — Peningar voru litlir í umferð, en daglega komu þó inn jafnt gull- sem silfurpeningar. — Mest af viðskiptunum var skrifað í frumbók og síðan inn- fært í höfuðbækur. Ritvélar þekktust ekki, og urðu allir verzlunarmenn á þeim árum að vera vel skrifandi, — aðrir þóttu óhæfir. Þá urðu líka flestir verzlunarmenn svo miklir listaskrifarar, að hand- bragð þeirra mátti telja listaverk. — Nú er þetta mest orðin vélavinna og oft mjög misjafnlega fram- kvæmd. — Af starfi sínu við þessar gömlu, stóru verzlanir öðluðust margir menn víðtæka verzlun- arþekkingu, sem varla fæst við skólagöngu. Þar urðu menn að vera jafnvígir á afgreiðslu í búð, bókfærslu í skrifstofu, þekkingu á gæðum útlendr- ar vöru og innlendra afurða, samningagerð við viðskiptamenn o. s. frv., en nú, eftir að sérverzl- anir hafa tekið við, er hætt við að kunnátta verzl- unarmanna verði cinhliða, þó að skóla- og bóklær- dórnur sé meiri. Verzlunarminjasöfnum hefur fyrir löngu verið komið á fót í nágrannalöndum okkar. Frændur okkar, Norðmenn, eiga sitt prýðilega safn í Björgvin, þar sem eru merkileg verzlunaráhöld frá miðöldum (frá Hansastaða-tímabilinu). Minja- safn Dana er í Kronborgarkastala við Eyrarsund, en Svíar eiga mörg slík söfn og merkileg, ýmist helguð verzlunar- eða sjóferðaminjum sínum. — Þessi mörgu söfn væru okkur áreiðanlega mikils virði til fyrirmyndar, þegar til kemur. — Skipulag saínsins Tvær leiðir eru viðvíkjandi húsnæði fyrir verzl- unarminjasafn. Onnur er sú, að flytja mörg gömul verzlunarhús á cinn stað og endurbyggja þau þar óbreytt. — Þessa aðferð höfðu Norðmenn. — Að sjálfsögðu yrði þessi staður að vera í nágrcnni Reykjavíkur. — Norðmcnn fluttu mörg hús, sum allstór, þ. á. m. verzlunarhús, heil prestssetur og kirkjur, nyrzt norðan úr Noregi og endurbyggðu á Bygdö, sem er í Oslofirðinum. Þar eru þessar byggingar nú alþjóð til sýnis, með öllum áhöldum og innanstokksmunum, eins og þeir voru notaðir fyrir hundruðum ára. — Þetta yrði að vísu nokkuð kostnaðarsamt, en vel framkvæmanlegt, og óneit- anlega væri ánægjulegt að geta gert þetta. — Á ýmsum verzlunarstöðum, víðs vegar um landið, standa enn forn verzlunarhús frá tímum einokun- arverzlunar Dana, og eru því allt að 200 ára gömul. 10 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.