Frjáls verslun - 01.10.1958, Blaðsíða 16
Pappakassaefni í rúllu, sem vegur eilt tonn
fá meira af nýtízku-vélum, til þess að geta sinnt
vaxandi þörfum útflutningsframleiðslunnar.
Einnig stendur það verksmiðjunni mjög fyrir
þrifum, að húsakostur er orðinn algjörlega ófull-
nægjandi. Verður að vona, að fjárfestingaryfir-
völdin sjái sér fært að verða við margítrekuð-
um óskum um leyfi til umbóta í því efni.
Framan af var erfitt að fá menn til að meta
nokkurs, að prentað væri á umbúðirnar, en nú
eru svo að segja allar umbúðir áprentaðar, og eru
menn almennt farnir að skilja, að góðar og
smekklegar umbúðir „selja“ vöruna.
Hjá Kassagerð Reykjavíkur vinna nú um 70
manns og hefur af vinnu þeirra orðið verulegur
gjaldeyrissparnaður fyrir þjóðarbúið. Þannig
hefði það kostað 9—10 millj. kr. meira á s.l. ári
að kaupa umbúðir erlendis frá í stað þess að
að skipta við Kassagerð Reykjavíkur. Auk þess
að stuðla að gjaldeyrissparnaði og veita mikla
atvinnu, hefur Kassagerðin greitt mikla skatta
eins og önnur einkafyrirtæki. Frá árinu 1951
hefur verksmiðjan t. d. greitt rúmar 3 millj. kr.
í skatta til ríkis og bæjar.
-----------«-----------
Aðsetur tslenzkra sendiráða
erlendis
Bandaríkin:
Embassy of lceland,
1906, 23rd Street N.W.. Washington D. C.,
sími: COlumbia 5-6653,
Ambassador: Thor Thors.
Bretland:
Icelandic Embassy,
17 Buckingham Gate, London S.W. 1,
sími: VlCtoria 5337; 5338,
Ambassador: Dr. Kristinn Guðmundsson.
Danmörk:
Islands Ambassade,
Dantes Plads 3, Kobenhavn,
sími: Central 9604,
Ambassador: Stefán Jóh. Stefánsson.
Frakkland:
Ambassade d’Islande,
124 Bd. Haussmann, Paris,
sími: LABorde 8154,
Ambassador: Agnar Kl. Jónsson.
Noregur:
Islands Ambassade,
Stortingsgade 30, Oslo,
sími: 41-34-35,
Ambassador: Haraldur Guðmundsson.
Sovétríkin:
Posolstvo Islandii,
Khlebnyi Pereulok 28, Moskva,
sími: 940603,
Ambassador: Pétur Thorsteinsson.
Svíþjóð:
Islands Ambassad,
Kommandörsgatan 35, Stockholm,
sími: 624016; 672753,
Ambassador: Magnús V. Magnússon.
Sambandslýðveldið Þýzkaland:
Islándische Botschaft,
Kronprinzenstrasse 4, Bad Godesberg,
sími: Godesberg 5821; 5822,
Ambassador: Dr. Helgi P. Briem.
16
FRJALS VERZLUN