Frjáls verslun - 01.10.1958, Page 18
reksturinn og þar með framleiðslugetu þjóðarinnar.
Sérstalclega vill fundurinn benda á nauðsyn þess,
að álagningu veltuútsvara xierði breytt þannig, að
þau verði frádráttarhœf, og leggist á allan atvinnu-
rekstur án tillits til rekstrarforms. I núverandi
mynd eru þau þess valdandi, að fjölmörg jyrir-
tœki greiða meira en hreinar tekjur sínar í saman-
lagða skatta og útsvör.
Ennfremur krefst fundurinn þess, að allur at-
vinnurelcstur sé látinn búa við sömu reglur um
slcatt- og útsvarsgreiðslur, í hvaða formi, sem hann
er rekinn og hverjir, sem eru eigendur lians.
Verðlagsmál
Aðalfundur V. í. 1958 telur verðlagsákvœði þau,
sem auglýst voru 17. þ. m. algjörlega ófullnœgj-
andi til þess að standa undir ltostnaði við inn-
flutning og dreifingu á vörum og nauðsynlegri
verzlunarþjónustu.
Fundurinn átelur misrétti það, sem fram kemur
í meðferð hinna ýmsu greina verzlunarinnar og
krefst þess, að samkeppnin í verzluninni verði lát-
in ráða vöruverði. Að öðrum lcosti telur fundurinn
nauðsynlegt að endurskoða verðlagsákvœðin hið
bráðasta.
Fríverzlun Evrópu
Aðalfundur V. f. 1958 beinir þeirri áskorun til
ríkisstjórnarinnar, að liún gcri sem fyrst nauðsyn-
legar rannsólcnir og ráðstafanir á sviði efnaliags-
mála, svo að öllum undirbúningi verði lokið, þegar
taka þarf álcvörðun um aðild að friverzlunarsvœði
Evrópu.
Jafnfrarnt mœlist fundurínn til þess, að rílcis-
stjórnin hafi samráð við stjórn V. f. um þessi mál.
Gjaldeyris- og lánamál
Hin gifurlcga fjárfesting hefir orðið þess vald-
andi, að verzluninni hefur eklci verið séð fyrír því
relcstrarfé sem nauðsynlegt cr. Hafa vörubirgðir
i landinu því minnkað stórlega, sem teljast verð-
ur mjög alvarlegt, eins og ástandið er nú í alþjóða-
málum,.
Aðalfundur V. f 1958 beinir því þeirn tilmœlum
til stjórnar V. f., að hún gæti sem bezt hagsmuna
verzlu.narínnar gagnvart bönkunum og innflutn-
ingsyfirvöldunum, að því er snertir útlán og gjald-
eyrisúthlutun.
Landhelgi smál
Aðalfundur V. f. 1958 lýsir áruegju sinni yfir
útfærslu fiskveiði lögsögu íslands í 12 sjómílur og
harmar aðgerðir fíreta i þessu máli.
Jafnframt skorar fundurinn á íslenzka verzlunar-
stétt að lcynna sem bezt málstað fslands á erlend-
um vettvangi.
Heimsókn í þýzku hagstofuna
Frh. af bls. 4
Werner, forstöðumaður iðnaðarskýrsludeildar-
innar, fullyrtu báðir, að tregða skýrslugjafa við
að gefa upplýsingar væri ekkert sérstakt vanda-
mál í Þýzkalandi. Aðrir tóku í sama streng.
Það er vissulega um annað viðhorf að ræða
á Norðurlöndum, og þá ekki sízt hjá okkur.
Til þess liggja ýmsar ástæður, sem of langt
yrði að rekja hér og er el'ni í sjálfstæða
grein. Ilitt er ljóst, að engin statistík verður
traust og áreiðanleg, ef gagnasöfnunin er ófull-
komin, fremur en hús, sem af vanefnum er gert,
verður vandað.
Hér á landi hefir fengizt allgóður efniviður í
ýmsar skýrslur, svo sem mannfjöldaskýrslur og
verzlunarskýrslur og jafnvel búnaðar- og íiski-
skýrslur, o. fl., en mikið skortir á góðar upplýs-
ingar á öðrum sviðum, svo sem í iðnaði og innan-
ríkisverzhminni. Mun vera sterkur vilji fyrir
hendi hjá ráðandi mönnum um að bæta úr þessu
til hagsbóta bæði fyrir þá sem gefa skýrslur,
safna þeim og vinna úr þeim og nota þær. Er
þess að vænta, að samræmt átak verði gert þar
að lútandi, áður en langt um líður. Ileildarmynd
af íslenzku efnahagslífi fæst ekki, meðan allur
efniviður er ekki fáanlegur.
Deildaskiptingin.
Forseti (Prásident) þýzku hagstofunnar er dr.
Fiirst. Hann er jafnframt kosningastjóri þýzka
sambandslýðveldisins. Við æðstu stjórn stofn-
unarinnar helir hann við hlið sér nefnd aðstoðar-
manna (Beirat), sem flestir eru háttsettir menn
í ráðuneytunum eða þýðingarmiklum stofnun-
um. A fundum þessarar stjórnarnefndar eru
æðstu ákvarðanir um starfshætti stofnunarinn-
ar teknar.
Statistisches Bundesamt er í 9 deildum. Ein
deildin hefir með stjórn stofnunarinnar að gera
(reikningshald, mannahald, lögfræðileg atriði,
bókasafn, almenn skipulagning o. fl.). Önnur
deild fjallar um almenna skipulagningu statist-
ískra málefna. Það er deildin, sem hefir yfir-
umsjón með samningu eyðublaða og tilhögun
skýrslnanna. Undirbúningur að véltöku skýrslna
og upplýsingasöfnun frá útlöndum heyrir einnig
undir þessa deild. Það er í raun og veru þar sem
húsameistarar hinnar statistísku heildarmyndar
18
FRJÁLS VEBZLUN