Frjáls verslun - 01.10.1958, Síða 26
Samvinnufélögin í Svíþjóð Frh. af bls. 6
og á síðasta ári varð vart smávegis rýrnunar.
Svo virðist því sem samvinnuhreyfingin sænska
eigi við erfiðleika að stríða. Spurningin er, hvort
hún nái öllu lengra með því að fylgja hefðbund-
inni samvinnustefnuskrá.
Þetta er ástæðan, sem liggur því til grund-
vallar, að Samband samvinnufélaganna og kaup-
felögin eru tekin að kanna möguleikana á öðrum
sviðum en matvælaverzluninni, sem til þessa hef-
ur verið langsnarasti þátturinn í verzlun þeirra.
Nú á að nota sér hagstæða þróun sérverzlananna.
Hér koma samvinnu-vöruhúsin til sögunnar.
A síðustu árum hafa Samband samvinnufélag-
anna og kaupfélögin stofnað fjölda vöruhúsa,
sem öll bera heitið „Domus“. Sum þeirra eru
afar stór og dýr að allri gerð. Sum eru í nýbygg-
ingum, önnur hafa áður verið í einkaeign, og
enn önnur hafa verið yfirtekin frá einstökum
kaupfélögum. Domushringurinn er greindur í
fjölda útibúa, sem eru undir aðalstjórn dóttur-
fyrirtækis Sambands samvinnufélaganna. Að
þessu leyti er sjálfstjórn kaupfélaganna úr sög-
unni, þótt samvinnuhreyíingin geri annars mjög
mikið úr henni.
Tízkuvörur á boðstólum.
Ein af grundvallarkenningum samvinnustefn-
unnar fjallar um góðar og vandaðar vörur. Hvers
konar vörur hafa þá vöruhúsin á boðstólum?
Mjög mikið ber á munaðarvarningi, t. d. glæsi-
legum baðfötum og innfluttum tízkuskóm, án
þess að til séu þægilegir skór til daglegrar notk-
unar.
Hverju svara samvinnumenn, þegar á þetta er
deilt? Vafalaust er, að hinum dyggari samvinnu-
mönnum fellur ekki alls kostar við hina nýju
verzlunarhætti. Hér skal getið um eitt sjónar-
mið, sem segja má, að gæti réttlætt þróunina.
Við verðum að afla okkur fleiri viðskipta-
manna, segja forvígismenn sænsku samvinnu-
félaganna. Einkum verðum við að ná til okkar
æskufólki því, sem verða mun framtíðar-kjarni
samvinnuhreyfingarinnar. Þess vegna hljótum
við að freista þess að fullnægja óskum þess. Við
gætum til dæmis vel selt andlitskrem í einföld-
um dósum við lágu verði, eins og gert er í lyfja-
búðum. En stúlkurnar sækjast ekki eftir slíku.
Þær borga með glöðu geði margfalt hærra verð
fyrir sömu vöru, ef hún er í íburðarmiklum um-
búðum. Þær kjósa glæsibraginn. Við tökum af-
leiðingunum og látum þær fá það, sem þær vilja.
Enska samvinnustefnan fylgir gömlu kenning-
unum nákvæmar en sú sænska, en árangurinn
er ekki uppörvandi. Einstrengingshátturinn hef-
ur orðið leiðigjarn og valdið stöðnun og afturför.
Þessi röksemdafærsla er vissulega rétt, en
hún veldur því, að forystumenn samvinnuhreyf-
ingarinnar fylla sama flokk og kanpmenn, sem
Samband samvinnufélaganna í Svíþjóð lastar þó
af miklum móði. Hvað er þá orðið af hinu háa
siðferðisstigi, sem Albin Johansson prédikaði?
Nei, það er annars satt: — Við erum allir
kapítalistar. ^ þýddi, nohkuð stytt.
Hér eru talin upp nokkur helztu fyrirtækin í eigu
Sambands samvinnufélaganna í Svíþjóð, dóttur-
fyrirtækja þess eða kaupfélaganna.
Iðnfyrirtæki
Karlshamns Oljefabriker AB (dýra- og jurtaolíur)
Björnekulla Fruktindustri (ávaxtaiðnaðarvörur)
Skundiakonserv AB (niðursoðið grænmeti og fiskur)
Gissleliamns fiskföriidlings AB (niðursoðinn fiskur)
Kvarn AB Tre Kronor (kornvörur)
AB Tre Lejon (kornvörur)
Wárbyvatten AB (gosdrykkir)
AB Wárby Bryggerier (öl)
Wasa Bryggeriet (gosdrykkir)
AB Kalmar Chokladfabrik (sælgæti)
Konfektions AB S:t Erik (fatnaður)
Regnkládersfabriken Vargen AB (regnföt)
Vinslövs Syfabriks AB (skyrtur)
Káttilstorps Textilindustri AB (nærföt)
Kembels Skofabriks AB (skór)
Svenska Skoindustri A15 (skór)
Svenska Gummifabriks AB (plast- og gúmmívörur)
AB Ilenkel-IIelios (bvottaefni)
I.umalampan AB (Ijósaperur)
AB Stathmos (vogir)
Verkstads AB Calor (l)vottavélar)
AB Bygg- och Transportekonomi (flutningafyrirtæki)
Domkraft AB Nike (lyftitæki)
Ilugin Kassaregister (reiknivélar)
Fiskeby Fabriks AB (pappír o. fl.)
AB LainmhulLs möbler (húsgögn)
Karlholms AB (trétexplötur)
AB Gustavsbergs Fabriker (postulín)
Smósöluverzlun
Vöruhús:
„PUB“ — Paul U. Bergströms AB, Stokkhólmi
Forum, Uppsölum
14 vöruhús víða um Inndið, sem öll heita Domus
Matvöruverzlanir í Stokkhólmi:
Kronlaxen Kvickly
Bandet Starten
26
FRJÁLS VEBZLUN