Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1959, Blaðsíða 19

Frjáls verslun - 01.09.1959, Blaðsíða 19
Auk afkomenda frumbyggjanna og áðurnefndra innflytjenda, býr nú á Hawaii-eyjum fólk af ýms- um þjóðum, svo sem frá Kóreu, Puertó Ríkó, Spáni, Rússlandi, Þýzkalandi og Bandaríkjunum. Mikil blöndun hefur átt sér stað milli þessara þjóða, og hefur smæð eyjanna og einangrun efa- laust átt mikinn þátt í því. Blöndunin er komin á það stig, að sumir mannfræðingar eru farnir að tala um, að þess verði ekki mjög langt að bíða, að nýr Hawaii-kynflokkur myndist úr þjóðabrotunum. Móttaka ferðamanna Þrír helztu atvinnuvegirnir á Hawaii-eyjum, eru: sykurframleiðsla, ananasrækt og móttaka ferða- manna. Síðastnefnda atvinnugreinin er betur skipu- lögð en í flestum öðrum löndum, enda hefur ferða- mannastraumurinn aukizt mjög á síðari árum. T. d. komu 162.000 ferðamenn til eyjanna árið 1957, og dvaldist hver þeirra þar að meðaltali í 20 daga. Langstærstur hluti þeirra kemur frá Banda- ríkjunum, og er mikið um flug þangað og milli FKJÁLS VERZLUN 19

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.