Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 1

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 1
FRJÁLS VERZLUN Utg.: Frjáls Verzlun Útgáfufélag h/f Iiitstjóri: Valdimar Kristinsson Ritnefnd: Birgir Kjaran, formaður Gisli Einarsson Gunuar Magnússon FRJÁLS VERZLUN 20. ÁRGANGUR — 5. HEFTI — 1960 í ÞESSU HEFTI: HJÁLMAR R. BÁRDARSON: Stálskipasmíðar á Islandi Bankalöggjöfin ★ GUNNAR GUÐJÓNSSON: Róltækar ráðstafanir voru nauðsynlegar * MAGNÚS Z. SIGURÐSSON: Ný viðhori í viðskiptamálum Vestur-Evrópu ★ JÓNAS G. RAFNAR: Akureyri ★ GYLFI Þ. GÍSLASON: Tímamótaár í viðskiptasögunni ★ Aðalfundur Verzlunarráðs . íslands 1960 ★ JÖKULL JAKOBSSON: < Addisabeba ★ o. m. fl. Stjóm útgájujélags FRJÁLSRAR VERZLUNAR Birgir Kjaran, formaður Gunnar Magnússon Uelgi Olafsson Sigurliði Kristjánsson Þorvarður J. Júlíusson Skrifstofa: Vonarstræti 4, 1. hæð Sími 1-90-85 — Pósthólf 1193 VfKINGSPRENT H.F. 1‘REN'T.MÓT UP Islenzka bankalöggjöfin er mjög ófullkomin. Mörg ákvœði liennar eru orðin úrelt og einnig vantar ýmislegt í hana, sem kröfur tímans gera nauðsyrdegt. Heilar stofnanir vantar, svo sem veðlánastofnanir, og atliuga þyrfti um aðrar, hvort hægt vœri að skapa þeim ný verkefni, svo sem Framkvœmdabank- anum. Vinstri stjórnin endurslcoðaði bankalöggjöfina að nokkru, en sú endurskoðun var að mestu kák eitt, enda réðu þar einungis pólitísk sjónarmið gerðum. Tilætlunin var fyrst og fremst sú, að bola pólitískum andstœðingum frá áhrifum við bankana og koma skjólstœðingum stjórnarinnar í embætti. I sambandi við þessi mál er mikilvœgast, að samþykkt verði ný, almenn bankalöggjöf. Þá þarf að endurskoða lögin um Seðlabankann og skapa meiri festu um, stjórn ha7is. Verð- ur þar að fara þá leið, sem tryggir sjálfstœði bankans, jafn- framt því sem koma þarf í veg fyrir, að stejna lians verði í andstöðu við efnaliagsmálastefmi rikisstjórna á hverjum tíma. Eðlilegt er, að Seðlabankinn kæmi upp og rœki verð- bréfamarkað eða kaupþing, sem nú hefur skapazt gnind- völlur fyrir með heilbrigðri efnahagsmálastefnu. Þar vœru boðin út ahnenn lán, og — það sem vœri enn mikilvægara — seld hlutabréf stórra jyrirtœkja, sem stofnuð vœru með þátt- töku (dmennings. Væri þá hœgt að framkvœma ýmislegt, sem aðeins hefur verið á fœri liins opinbera, eða látið hefur verið ógert með öllu. Samfara þessu þarf að endurskoða lögin um hina þrjá við- skiptabanka ríkisins, Landsbankann, Utvegsbankann og Bún- aðarbankann, og fœra þau til samrœmis við verlcefni þeirra, eins og þau eru nú orðin. Ætti þessi endurskoðun banka- löggjafarinnar að verða eitt af meginverkefnum þess alþingis, er nú situr.

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.