Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 31

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 31
Athafnamenn og frjálst framtak ^ Guðmundur Guðmundsson idnrekandi Guðmundur Guðmundsson er fæddur í Onundarholti í Árnes- sýslu 4. júní 1910. Foreldrar hans voru Guðmundur Bjarnason bóndi og Ilildur Bjarnardóttir kona hans. Þau fluttust til Reykjavík- ur árið 1911, og hefur Guðmundur átt heima þar síðan. Guðmundur er kvæntur Ólafíu Ólafsdóttur, og eiga þau tvo syni, Ólaf og Gísla. ★ Húsgögn hafa löngum verið frumstæð á íslenzkum heimilum. Efnisskortur og áhaldaleysi, svo og lélegur húsakostur hefur vakl- ið þessu. En oft var reynt að gera húsgögnin eins vel úr garði og að- stæður frekast leyfðu, og margt var prýtt með útskurði. Eftir að samgöngur tóku að batna var far- ið að flytja inn erlend húsgögn, en fáir höfðu ráð á að kaupa mik- ið af þeim. Þannig var þó hægt að fylgjast nokkuð með húsgagna- gerð erlendis, og um síðustu alda- mót hófu svo íslenzkir iðnaðar- menn að smíða húsgögn með að- stoð véla. Og risu þá upp í laml- inu fyrstu vinnustofurnar, sem ein- göngu framleiddu húsgögn. Ýmsir hófu þessar smíðar einir, en bættu síðan við einum og síðar flciri starfsmönnum, eftir því sem salan jókst. Þannig byrjaði Guð- mundur Guðmundsson. Fyrst cinn í Iitlu herbergi við erfiðar aðstæð- ur, en árið 1938 hóf hann svo rekstur vinnustofu í kjallara húss- ins að Víðimel 31. Þar framleiddi hann máluð húsgögn. Starfsliðið jókst á næstu árum í sex manns og sífellt var bætt við fleiri vél- um til vinnusparnaðar. Árið 1945 stofnaði Guðmundur svo Trésmiðjuna Víði hf. og lét jafnframt reisa stórt verksmiðju- hús að Laugavegi ÍCG, sem var samtals 4 þús. ferm. að gólffleti, á fjórum hæðum. Þar var hafin meiri fjöldaframleiðsla á húsgögn- um, en áður mun hafa þekkzt hér á landi. Smám saman jók fyrirtækið vélakost sinn, og starfsmönnunum fjölgaði að sama skapi, enda marg- földuðust afköstin á tiltölulega skömmum tíma. Er Trésmiðjan Víðir nú orðin langstærsta hús- gagnaverksmiðja landsins, með um 80 starfsmenn. Árið 1952 var hafin framleiðsla á bólstruðum húsgögnum og er hún nú orðin snar þáttur í heildar- framleiðslunni. Árið 1957 var húsnæði trésmiðj- unnar aukið vcrulega með því að byggja ofan á húsið. Strax á eftir jók fyrirtækið fjölbreytni sína í húsgagnagerð. Nú framleiðir það margvísleg húsgögn, bónuð og póleruð, úr flestum þeim harðvið- artegundum, sem til landsins flytj- ast. Á síðastliðnu ári var hafin framleiðsla á „spring-dýnum“; þá er í undirbúningi framleiðsla á plast-húsgögnum, sem mjög ryðja sér til rúms erlendis og þykja smekkleg og þægileg. Sala húsgagna frá Trésmiðjunni Víði hefur stöðugt farið vaxandi, enda hefur verið hægt að selja þau tiltölulega ódýrt vegna hag- stæðra framleiðsluhátta. Nú í haust hefur fvrirtækið mjög aukið verzlunarhúsnæði sitt, og er þar nú sýnt mikið úrval húsgagna á 750 ferm. gólffleti, í björtu og smekklegu umhverfi. FKJÁLS VERZLUN 31

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.