Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 32

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 32
Aðalfundur V erzlunarráðs íslands 1960 Aðalfundur Verzlunarráðs íslands var haldinn dagana 13. og 14. október. Fundarstjóri, fyrri fund- ardaginn, var kosinn Árni Árnason, kaupmaður, og fundarritarar þeir Sveinn Finnsson og Gísli V. Einarsson. Formaður ráðsins, Gunnar Guðjónsson, flutti ræðu. Talaði hann aðallega um efnahagsráðstaf- anirnar, sem ríkisstjórnin gerði á árinu og ræddi áhrif þau, sem þær liafa haft til þessa. Ræða for- manns er birt á öðrum stað hér í blaðinu. Því næst flutti framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins, Þorvarð- ur J. Júlíusson, skýrslu um störf stjórnarinnar á liðnu starfsári og las upp reikninga. Síðan voru kjörnar nefndir, er áttu að fjalla um þau mál, sem fyrir fundinum lágu. Fyrri fundardeginum lauk með því, að birt voru úrslit stjórnarkosninga. Stjórn Verzlunarráðs ís- lands skipa nú eftirtaldir menn: Tilnefndir af sérgreinafélögum V. í.: Birgir Ein- arsson, ísleifur Jónsson, Gunnar Ásgeirsson, Ilans R. Þórðarson, Kristján G. Gíslason, Eggert Krist- jánsson, Egill Guttormsson, Hilmar Fenger og Gunnar Friðriksson. Kosnir af meðlimum V. í. utan sérgreinafélaga: Gunnar Guðjónsson, Þorvaldur Guðmundsson, Magnús Viglundsson, Magnús J. Brynjólfsson, Othar Ellingsen, Sveinn Guðmundsson, Hallgrímur Fr. Hallgrímsson, Tómas Björnsson, Sigurður Óli Ólafsson og Sturlaugur H. Böðvarsson. Síðari daginn var fundur haklinn að Iílégarði í Mosfcllssveit. Fundarstjóri var Þorsteinn Bern- harðsson, stórkaupmaður. Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptainálaráðherra, flutti ræðu í upphafi fundarins. Hann ræddi þróun efna- hagsmálanna síðustu árin, ráðstafanir þær, sem gerðar voru í ársbyrjun, og þann árangur, sem þeg- ar er kominn í ljós. Nefndir, sem starfað höfðu kvöldið áður og um morguninn, skiluðu áliti. Nefndirnar voru viðskipta- málanefnd, allsherjarnefnd og skattamálancfnd. Umræður um tillögur og álit nefndanna og tillögur einstaklinga fóru síðan fram, og voru afgreiddar ályktanir um eftirfarandi málefni: Efnahagsmál, verðlagsmál, utanríkisviðskipti, seðlabanka, kaup- þing, opinber fyrirtæki, einkasölur ríkisins, lög V. í., Verzlunarbanka, tollvörugeymslur, skattamál, mat- málstíma skrifstofu- og afgreiðslufólks, stóreigna- skatt, útflutningsverzlun og einokunarlöggjöf. Magnús J. Brynjólfsson, formaður skólanefndar Verzlunarskóla Islands, ræddi byggingarmál skól- ans og hvatti kaupsýslumenn til liðveizlu við það mál. Þá þakkaði hann þann stuðning, sem Bæjar- stjórn Reykjavíkur hefur sýnt skólanum með veit- ingu byggingarstyrks og kvaðst vona, að Alþingi mundi einnig sýna skólanum sama velvilja. Þá var kosin kjörnefnd og endurskoðendur fyrir næsta ár. I kjörnefnd voru endurkosnir þeir Árni Árnason, Guido Bernhöft og Páll Jóhannesson. End- urskoðendur voru kosnir Sveinn Ólafsson og Otto A. Michelsen. ★ Fyrsti fundur hinnar nýkjörnu stjórnar Verzl- unarráðs íslands var haldinn 21. okt.óber. Gunnar Guðjónsson, stórkaupm., var endurkjörinn formað- ur ráðsins, Sigurður Ó. Ólafsson, alþm., var kosinn varaformaður og Sveinn Guðmundsson, forstjóri, annar varaformaður. í framkvæmdanefnd ráðsins tóku sæti auk fram- antalinna manna, þeir Kristján G. Gíslason, stór- kaupm., Birgir Einarsson, apótekari, Magnús Brynj- ólfsson, kaupmaður og Tómas Björnsson, kaup- maður. Aðalfundur Verzlunarráðs Islands gerði eftirfarandi ályktanir: Efnahagsmál Aðalfundur V. f. 1960 lýsir ánægju sinni yfir hinni gagngerðu stefnubreytingu í efnahags- og viðskiptamálum, sem mörkuð hefur verið með við- reisnaraðgerðum ríkisstjórnarinnar. Fundurinn lít- ur svo á, að með þeim sé lagður grundvöllur að heil- brigðri þróun atvinnulífsins, vaxandi framleiðslu og bættri þjónustu til hagsbóta fyrir alla þjóðina, og væntir þess, að stjórnarvöld og þegnar þjóð- félagsins hagi gerðum sínum þannig, að árangur- inn verði sem beztur. Fundurinn vill benda á, að kostur verzlunarinnar hefur verið þrengdur mun meira en annarra at- vinnugreina, en verzlunarstéttin liefur sætt sig við það í þeirri trú, að árangur efnahagsráðstafananna muni skapa verzluninni, sem öðrum atvinnuvegum, heilbrigðan starfsgrundvöll. 32 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.