Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 34

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 34
4. Að jöfnuð verði aðstaðan milli gainalla og nýrra félaga með því að heimila skattfrjálsa útgáfu fríhlutabréfa til samræmis við raunverulegt verð- mæti hlutafjárins. 5. Að settar verði reglur um fyrningaafskriftir og birgðamat, sem komi í veg fyrir rýrnun á raun- verulegu verðgildi höfuðstóls fvrirtækjanna. Heim- ilað verði að miða afskriftir við endurkaupverð framleiðsl';tækjá og leyft frjálsara mat vörubirgða en nú gildir. 0. Heimildin til fárdráttar. á rekstrartapi verði rýmkuð frá því sem nú gildir, þannig að luin taki til a. m. k. 5 ára. 7. Að eignarskattur og eignarútsvar félaga verði fellt niður. 8. Að framkvæmd skatta- og útsvarsálagningar verði samræmd og gerð öruggari og einfaldari en nú er, og innheimta verði framkvæmd af einni stofnun. Matmálstími Aðalfundur V. í. 1960 beinir þeim tilmælum til stjórnar ráðsins, að hún athugi möguleikana á því fyrirkomulagi, að starfsféúk í verzlunum og á skrif- stofum þurfi ékki að fara heim til matar um há- degið, enda gæti slíkt fyrirkomulag verið bæði at- vinnurekendum og launþegum til hagsbóta. Lög VerzlunarráSs íslands Aðalfundur Verzlunarráðs íslands haldinn dag- ana 1.8. og 14. október 1960, samþykkir að fram fari endurskoðun á lögum Verzlunarráðs íslands og felur í því skyni hinni nýkjörnu stjórn ráðsins, að skipa 9 manna nefnd og sé formaður Verzlunar- ráðsins formaður nefndarinnar. Nefndin skal ljúka endurskoðun laganna það tímanlega að hægt verði að halda aukaaðalfund Verzlunarráðs íslands eigi síðar en í lok maímánaðar, telji nefndin þörf á breytingu á lögunum. Aukaaðalfundurinn gangi þá endanlcga frá samþykkt laganna. Aðalfundur Verzlunarráðsins í september 1961 yrði þá haldinn samkvæmt þeim lögum. Tillaga frá nokkrum stórkaupmönnum Aðalfundur V. í. 1960 felur stjórn ráðsins að hefja hið fyrsta viðræður við samtök útflytjenda sjávar- og landbúnaðarafurða um, að kaupsýsluinönnum gefist kostur á að taka meiri þátt í útflutnings- verzlun landsins en verið hefur. Tillaga frá Sigurliða Kristjánssyni Aðalfundur Verzlunarráðs íslands 1960 mótmælir enn á ný stórcignaskattslögunum frá 1957 og skorar á ríkisstjórn og Alþingi að afnema lögin og fella skattinn niður. ÁFANGAR Bragi Kristjánsson hefur fyrir nokkru verið ráðinn forstöðu- maður rekstrardeildar Lands- síma íslands. — Bragi er fædd- ur í Reykjavík 27. ágúst 1921. Hann lauk stúdentsprófi frá M. R. árið 1941. Stundaði nám í við- skiptafræði við Háskóla íslands, þar til hann varð skrifstofustjóri Nýbvggingarráðs 1944. Árið 1947 varð hann skrif- stofustjóri Fjárhagsráðs og 1954 skrifstofustjóri fjárfestingarmála hjá Innflutningsskrifstofunni. Bragi hefur unnið mikið að íþróttamálum; átti m. a. í nokkur ár sæti í stjórn Frjálsíþróttasam- bands Islands og var formaður þess um skeið, og hann hefur verið formaður Olympíunefndar íslands Tlörður ITelgason var settur deildarstjóri í varnarmáladeild Utanríkisráðuneytisins 1. okt. sl. — Hörður er fæddur á ísafirði 27. marz 1923. Hann lauk stúd- entsprófi frá M. A. 1943 og prófi í þjóðskipulagsfræði épolitical science) frá Duke-háskólanum í North-Carolina í jan. 1947. Hann var ráðinn til starfa í Utanríkisráðuneytinu árið 1948 og starfaði í París, við sendiráð íslands, frá 1949—’60, er liann flutti heim, sem sendiráðunaut- ur í utanríkisráðuneytinu. síðan 1954. Adolf Karlsson tók til starfa sem skrifstofustjóri hjá Ileild- verzlun Magnúsar Kjaran hinn 1. júní sl. Hann er fæddur í Reykjavík 15. apríl 1916 og út- skrifaðist úr Verzlunarskóla ís- lands árið 1935. — Adolf starf- aði áður hjá Skóverzlun Lárusar G. Lúðvígssonar, eða um nær 25 ára skeið. 34 FRJÁLS VF.RZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.