Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 5
M/s Hrafn Sveinbjarnarson II, Grindavxk, 110 brl. SmiSaSur í Noregi eitir teikningum Hjálmars R. Bárðarsonar skipa í smíði hjá reyndum stálskipasmíðastöðv- um. Hjá mörgum Islendingum er ótrúlega rótgróin sú vanmáttarkennd, að trúa því vart, að í iðnaði geti verið til óreyndari menn en við sjálfir. Svo var þó um sumar þeirra skipasmíðastöðva er á síðustu árum hafa smíðað stálskip fyrir okkur Islendinga, að stundum hefði ég treyst jafnvel smiðjunum í heimahöfn skipanna, í samvinnu við tréskipasmíðastöð staðarins, að smíða stál- skip, og þeim erlendum, sem verkið tóku að sér. Enda er það staðreynd, að margar þessara skipa- smíðastöðva voru hreinlega að byrja að smíða stálslcip, og fengu til þess verkefni frá íslenzkum kaupendum að æfa sig í þessari grein. Það er sorglegt, að við skyldum ekki bera gæfu til að veita íslenzkum iðnaðarmönnum tækifæri til þessarar þjálfunar, og byggja þar með upp ís- lenzkan stálskipasmíðaiðnað. Eins og að framan var minnzt á, er ástæðan liins vegar ekki fyrst og fremst tæknilegs eðlis, heldur fjárhagslegs. Lánsfjármagn hefir skort innanlands til að geta veitt kaupendum sömu greiðsluskihnála og erlendar stöðvar, og óraun- hæf skráning íslenzks gjaldmiðils hefir gert verð á íslenzk-smíðuðu skipi óeðlilega hátt. Nú er þetta að nokkru liðin tíð. Verðlags vegna ætti í dag að vera hægt að smíða stálskip hér innanlands á sambærilegu verði, eftir að ís- lenzkar skipasmíðastöðvar hafa haft tækifæri til að þróast. Þess er og að vænta að lánsfjárskort- urinn verði leystur ef fjármál fá að þróast. eðli- lega á komandi árum. Ef litið er á ástand þessara mála í dag, fæ ég ekki betur séð, en að mögu- leikarnir liggi opnir til að hefja á Islandi smíði fiskiskipa úr stáli fyrst og fremst, en smíði ann- arra stálskipa eftir því sem verkefnin berast. Undanfarin ár höfum við keypt mikinn fjölda nýrra skipa. Þörfin verður því tæplega eins mikil að fjölda til á næstu árum, en hún verður alltaf einhver. Við eigum nú að leggja drög að því að geta smíðað hér innanlands vaxandi hluta þess, sem við þörfnumst í þessum efnum. — Ef við hins vegar enn sofum værum svefni varð- andi þessi mál nokkur ár í viðbót, þá blasir við okkur aftur álíka kapphlaup um nýsmíði stál- skipa erlendis og var það tímabil, sem nú er væntanlega að fjara út. Auk þess vandamáls kemur svo annað engu minna, en það er við- hald alls þessa flota stálskipa. Ef við ekki á næstu árum eflum verulega stálskipasmíði og stálskipaviðgerðir innanlands, þá eigum við á hættu að verða innan fárra ára að senda mik- inn fjölda þessara stálskipa einnig til viðhalds FRJÁLS VERZLUN 5

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.