Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 27
Heildarhækkun verðlagsins, sem gert var ráð fyrir í áætlunum ríkisstjórnarinnar, nam því 17—18 stig- um, en auknar fjölskyldubætur, auknar niður- greiðslur á kornvörum, kaffi sykri og lækkun beinna skatta áttn að svara til samtals 13—14 stiga, þann- ig að hækkun vísitölu framfærslukostnaðar átti að vera 4 stig. Af þeim stigum var þó, eins og ég minntist á áðan, 1 stig efnahagsráðstöfununum sjálfum óviðkomandi. Hver hefur verðhækkunin raunverulega orðið? Vísitala smásöluverðlags nam 1. okt. sl. 117 stigum, og vísitala framfærslukostnaðar 104 stigum, eða nákvæmlega því, sem gert hafði verið ráð fyrir. Allar verðhækkanir, sem efnahagsráðstafanirnar gefa tilefni til, eru nú komnar fram og ætti því ekki að verða breyting á smásöluverðlagi á næstu mánuðum, nema verðbreytingar erlendis gefi til- efni til slíks. Þess ber þó að gæta, að þessi árangur hefur aðeins náðst með því móti að auka niður- greiðslur á innlendum landbúnaðarafurðum og fiski um tæjilega 2 stigum meira en upphaflega var gert ráð fyrir. Þetta var nauðsynlegt vegna þess, að nokkrar hækkanir urðu á verðlagi, sem ekki hafði verið ástæða tii að gera ráð fyrir, þegar efnahags- ráðstafanirnar voru undirbúnar, og voru þeim í sjálfu sér óviðkomandi. Var hér um að ræða hækk- anir á póst- og símagjöldum, rafmagns- og hita- veitutöxtum og verði á áfengi og tóbaki umfram það, sem gengisbreytingin gaf tilefni til, og enn- fremur brottfall niðurgreiðslna á ull, gærum og skinnum, sem notuð eru til framleiðslu innanlands. Stöðugt kaupgjald Kaupgjald hefur verið stöðugt, það sein af er þessu ári. Mér finnst flest benda til þess, að svo verði áfram um sinn. Abyrgir leiðtogar launþega- samtaka munu án efa gera sér ljóst, að ástand í launamálum er nú að mörgu leyti mjög ólíkt því, sem verið hefur um langt skeið undanfarið. í fyrsta lagi er þess að geta, að eins og ég nefndi áðan hefur þjóðarbúið á þessu ári orðið fyrir miklu áfalli, og hefur það rýrt þjóðartekjurnar um sem svarar 300 millj. kr. Þegar þannig háttar, er auðvitað augljóst, að hækkun á krónuupphæð kaups getur ckki fært launastéttum raunverulegar kjarabætur. Vandinn, sem nú er á höndum í hagsmunamálum launþega, er þvert á móti sá, að koma í veg fyrir, að þetta áfall verði lil þess að rýra raunveruleg kjör þeirra. Ríkisstjórnin skoðar það sem eitt. meginverkefni sitt að koma í veg fyrir, að svo fari, og einmitt þess vegna hefur hún lagt höfuðáherzlu á, að hin óhjákvæmilega kjararýrnun i bráð, sem gert hafði verið ráð fyrir, verði ekki meiri en hún var upp- haflega talin þurfa að vera. í öðru lagi- hljóta allir ábyrgir leiðtogar launþegasamtaka að gera sér grein fyrir, að launajöfnuður er nú orðinn svo mikill hér á landi, að óhugsandi er að Iiækka laun hinna lægst launuðu, eins og t. d. Dagsbrúnarmanna, nema iðnaðarmenn, sjómenn og opinberir starfsmenn fái hlutfallslega jafnmikla hækkun, og þá eiga bænd- ur lögum samkvæmt rétt á hækkuninni líka. Það er nokkurn veginn víst, að hver sú launahækkun, sem vrði hjá einni ákveðinni starfsstétt, hlyti einn- ig að faíla í skaut öllurn öðrum staxfshópum launamanna, þannig að lannahækkunin myndi fyrr en varir ná til allra launþega, auk sjómanna og bænda, þ. e. a. s. til meira en 80% allrar þjóðarinnar. En um það getur varla nokkrum blandazt hugur, að slík almenn launahækkun handa % hlutum þjóðarinnar gæti ekki orðið til neinna raun- verulegra kjarabóta, heldur mundi aðeins setja verðbólguhjólið af stað aftur og rýra verðgildi peninganna sem launahækkuninni svaraði. í þriðja og síðasta lagi hljóta ábyrgir leiðtogar laun- þegasamtakanna að gera sér ljóst, að allar lík- ur eru á að afstaða atvinnurekenda í launadeilu yrði nú talsvert frábrugðin því, sem verið hcfur um mörg undanfarin ár, þar eð bótakerfið er nú úr sögunni og atvinnurekendur geta alls enga von átt á því að fá auknar launagreiðslur bættar með hækkuðum bótum né heldur að tillit sé tekið til slíkra launahækkana við verðlagsákvarðanir, svo sem átt liefur sér stað um langt skeið undanfarið. Hætt er því við, að launadeilur nú mundu verða miklu harðari og langvinnari en áður. Mér þykir sennilegt, að allt þetta valdi því, að forustumenn launþegasamtakanna hugsi sig vel og rækilega um, áður en þeir leggi til allsherjarvinnudeilu. Mér finnst þær staðreyndir, sem ég hefi hér vakið athygli á, benda ótvírætt til þess, að full- yrða megi, að ráðstafanir þær, sem efnt var til með samþykkt efnahagsmálalöggjafarinnar á sl. vetri, séu að heppnast, að þjóðin sé á rétt.ri leið í efnahagsmálum sínum, að bjartara sé framundan en áður, þótt þjóðarbúið hafi orðið fyrir mjög al- varlegum áföllum á þessu ári. Verðfallið erlendis og hin lélega síldarvertíð valda því að vísu, að sjávarútvegurinn á nú við mun meiri erfiðleika að etja en gert hafði verið ráð fyrir. Ríkisstjórnin er staðráðin í því að mæta þeim erfiðleikum hvorki með nýrri gengislækkun né nýju bótakerfi í einu eða öðru formi. Sjávarútvegurinn verður að kom- ast yfir þann vanda, sem hann á við að etja, ann- ars vegar með auknum tæknilegum endurbótum á rekstri sínum, sem leitt gætu til meiri afkasta og aukins sparnaðar, og hins vegar með endurskipu- lagningu á fjármálum sínum. Að svo miklu leyti, sem ríkisvaldið gæti stuðlað að slíku, tel ég víst, að ríkisstjórnin mundi fús til þess. Einkum og sér í PUJÁLS VERZLUN 27

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.