Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.11.1960, Blaðsíða 20
Á myndinni sést miðbœr Akureyrar, hiuti af brekkunni íyrir ofan hann og efri hluti Eyrinnar Ég mun nú, í stuttu máli, leitast við að gera atvinnulífinu á Akureyri nokkur skil. Viðskipti Tvaupfélag Eyfirðinga var stofnað að Grund í Eyjafirði árið 188(i og varð með tímanum um- fangsmesta verzlun bæjarins. Það hefir átt dug- andi forystumönnum á að skipa. A Akureyri starírækir félagið margar deildir, sem of langt yrði upp itð telja, og er aðaleigandinn í atvinnu- fyrirtækjum, sem ýmist eru hlutafélög eða sam- eignarfélög. Bærinn hefir átt mikilhæfa kaupsýslumenn, en á haftaárunum kreppti svo að mörgum, að þeir gáfust upp og hættu atvinnurekstri. Síðari árin hafa nýjar verzlanir tekið til starfa, og er „Amaróbúðin“ þeirra stærst. Það fvrirtæki er nú að reisa stórhýsi við Hafnarstræti. Ekki er minnsti vafi á því, að verzlunin á mikla framtíð fyrir sér á Akurevri. Bærinn er samgöngumiðstöð fyrir allt Norðurland, blóm- legar sveilir í næsta nágrenni, og vaxandi kaup- tún við fjörðinn, sem að verulegu levti beina viðskiptum sínum til Akurevrar. Milli kaup- íelags og kaupmanna hefir verið hörð samkeppni á Akureyri, og á tímabili leit svo út, að félags- verzlunin yrði einráð. Nú er hins vegar sýnt, að bæði verzlunarformin munu þróast hlið við hlið, ef ríkisvaldið lætur þau njóta jafnréttis. Allir bankarnir, nema Iðnaðarbankinn, hafa útibú í bænum. Þar starfa og tveir sparisjóðir, Sparisjóður Glæsibæjarhrepps, stofnaður árið 1908, og Sparisjóður Akureyrar, stofnaður árið lúíl'S. Viðskipti við bankaútibúin eru mikil og vaxandi. Segja má, að öll meiri háttar atvinnu- fyrirtæki á Norðurlandi eigi þar athvarf, en utan Akureyrar er Siglufjörður eini staðurinn í fjórðungnum, sem hefir útibú frá banka. Samgöngur Aður fyrr fóru svo til allir vöruflutningar til og frá bænum um höfnina. Að Torfunesbryggju leggjast stærstu skip í flota okkar, og munu milli 4 og 5 hundruð stór og lítil skip fara um höfn- ina árlega. A Tanganum hefir verið komið upp hafnarmannvirkjum, sein mjög hafa orðið til þess að bæta aðstöðuna fyrir togaraútgei’ðina. Innan tíðar þarf að auka viðleguplássið í höfn- inni og koma þyrfti upp vöruskemmum. Vöruflutningar landleiðina til Reykjavíkur, 20 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.