Frjáls verslun - 01.03.1968, Blaðsíða 45
FRJÁLS VERZLUNÍ
45
„Þetta er nýi skíðaútbúnaðurinn forstjórans . . . !“
að og dýr skíði. Eins og kunnugt
er, eru til margar mismunandi
gerðir skíða, sem ætlaðar eru til
iðkunar hinna ýmsu greina innan
skíðaíþróttarinnar, og sama er að
segja um skíðaskó. Þeir eru af
mörgum tegundum, og er mikils
um vert, að menn noti viðeigandi
skó við þá grein, sem þeir leggja
stund á. Nánari upplýsingar um
þennan útbúnað allan er hægt að
fá í sportvöruverzlunum, og ættu
menn að kynna sér vel, það sem
á markaðnum er, áður en þeir
gera kaup sín.
Við teljum ekki ástæðu til þess
að rabba sérstaklega um hverja
grein skíðaíþróttarinnar um sig á
þessum vettvangi, aðallega vegna
þess, að vetrarólympíuleikarnir
eru nýafstaðnir, og menn hafa að
undanförnu séð myndir og fengið
upplýsingar um hinar ýmsu grein-
ar þessarar glæsilegu íþróttar í
öllum fjölmiðlunartækjum, sem
hér er völ á.
Aðalatriðið var að kynna lítil-
lega þessa íþróttagrein og rekja
sögu hennar, og ef þessar línur
yrðu til þess, að fleiri fengju
áhuga fyrir þessari heilnæmu
íþrótt, sem svo gaman er að
stunda, þegar nægur snjór er og
sólin skín, þá er tilganginum náð
BENZÍNBÆTIEFNI
OLÍUBÆTIEFNI
ÞORODDUR E. JÚNSSON
Hafnarstræti 15
Sími 11747
SÖBECHSVERZLUN
MIÐBÆ v/HÁALEITISBRAUT 58-60
SÍMI 38844 - 38855
BÚÐAGERÐI 9
SÍMI 32140.