Frjáls verslun - 01.03.1968, Blaðsíða 12
12
FRJALS VERZLUN
ar deilur rísa milli annarra aðila.
Ýmsar sjómannadeilur hafa og
verið erfiðar viðfangs.
— Hvernig er andrúmsloftið á
sáttafundunum?
Fyrstu árin, sem éggegndisátta-
semjarastörfum var andrúmsloft-
ið á fundunum talsvert öðruvísi
en nú. Samstarf forystumanna
verkalýðsfélaganna og atvinnu-
rekenda var þá minna og viðhorf
þeirra hvor til annars með öðr-
um hætti en nú. Var þá stundum
nokkur æsingabragur á fundun-
um, sem nú er með öllu horfinn.
Viðræður aðilanna eru nú jafnan
kurteislegar og vinsamlegar. Kem-
ur þar fram aukinn og gagnkvæm-
ur skilningur hvors aðilans á að-
stæðum hins. Gallinn á viðræðun-
um er helzt sá, að samninganefnd-
irnar treysta sér oft ekki á viss-
um stigum málsins til að segja
hug sinn allan af ótta við gagnað-
ilann.
— Hver eru laun sáttasemjara?
— Enda þótt sáttasemjarastörf
séu borgaraskylda er gert ráð fyr-
ir að einhver þóknun sé fyrir þau
greidd. Ég tók nauðugur við starfi
sáttasemjara og vildi þá ekki taka
við launum fyrir það og hefur svo
haldizt, ef frá eru skildir 2—3
ferðastyrkir. Ég hef hinsvegarsem
sáttasemjari kynnzt mörgum mál-
efnum, sem ég væri annarsókunn-
ugur og mörgu ágætu fólki frá
báðum aðilum. Ég tel mér mikinn
ávinning að hafa kynnzt þessu
fólki og vil mega telja margt af
því til vina minna og kunningja.
— Hvernig er liáttað sambandi
og samstarfi sáttasemjara og ríkis-
stjórnar?
— Vinnudeilur eru oft svo stór-
felldar og afdrifaríkar fyrir þjóð-
félagið, að ríkisstjórnirnar kom-
ast ekki hjá að hafa af þeim meiri
eða minni afskipti. Ríkisstjórnirn-
ar hafa og mjög oft lagt fram
drjúgan skerf til lausnar á vinnu-
deilum og verið sáttasemjurunum
mikill styrkur.
Hins vegar er staða sáttasemj-
ara þannig, að hann verður að
leitast við að hafa traust beggja
deiluaðila og má ekki blanda
störfum sínum saman við stjórn-
mál. Hlutverk hans er að leita
eftir öllum hugsanlegum mögu-
leikum til sem skjótastrar lausn-
ar á hverri deilu og það er skylda
hans að nota þá möguleika, sem
fyrir hendi eru, hvort sem hon-
um sjálfum eða ríkisstjórninni
kann að líka lausnin betur eða
verr. Ég hef því alltaf litið svo á,
að sáttasemjari sé óháður fyrir-
skipunum ríkisstjórnarinnar og
verði sjálfur að meta að hvaða
leyti hann getur tekið óskir henn-
ar til greina. Hitt er svo annað
mál, að samstarf sáttasemjara og
ríkisstjórnanna mun jafnan hafa
verið gott, og mér hafa þær oft
veitt mikinn stuðning, einkum
þegar um stórdeilur hefur verið
að ræða.
HVAR STENDUR
VISITOLUBUNDIN líf-
trygging tryggir fram-
tíð fjölskyldu yðar.
Iðgjöldin hjá Hagtrygg-
ingu eru þau lægstu
sem þekkst hafa hér á
landi.
HAGTRYGGING HF.
Eiríksgötu 5-Reykjavlk-sími 38580