Frjáls verslun - 01.03.1968, Blaðsíða 39
FRJÁLS VERZLUN
39
STARFSKYNNING
LOFTLEIDIR,
GODAN
DAG
■
Sólveig Sigurjónsdóttir við símavörzlusia hjá Loftleiðum h.f.
Hún hefur milda og þœgilega
rödd — rödd símastúlku, sem
margir kannast eflaust viS, því
að hún hefur haft þann starfa í
tœp 4 ár a3 svara í síma. Hún
heitir Sólveig Sigurjónsdóttir og
vinnur hjá LoftleiSum. En áSur en
kynni hennar og símatólsins urSu
svo náin, hafSi hún aliS mestan
aldur fyrir vestan, nánar tiltekiS
í DýrafirSi. Sem svo margir
góSir VestfirSingar tók hún gagn-
frœSapróf frá HéraSsskólanum aS
Núpi, en aS því loknu lagSi hún
leiS sína til höfuSborgarinnar.
ÞéttbýliS féll henni vel í geS, og
hóf hún síSan vinnu þar hjá
Landssímanum sem símastúlka.
Og enn fjarlœgSist hún VestífirS-
ina, því aS í Englandi dvaldist
hún í nokkra mánuSi. Nú starfar
Sólveig hjá LoftleiSum, en þang-
aS lagSi blaSamaSur leiS sína til
aS kynnast starfi símastúlku.
— Hvað liggur því fólki eink-
um á hjarta, sem hringir í þig,
Sólveig?
— Oftast vill það fá samband
við einhvern á skrifstofunni eða
þá upplýsingar um komutíma
flugvéla og áætlanir þeirra. En
komi fram spurningar, sem við á
skiptiborðinu kunnum ekki svör
við, þá gefum við einfaldlega sam-
band við viðkomandi deild.
— Hvernig er vinnutíminn?
— Við erum þrjár á símanum
hér og vinnum á þrískiptum vökt-
um. Dagvaktin byrjar klukkan 3
á morgnan til 7 á kvöldin, þá tek-
ur við kvöldvaktin frá 7 til 12 á
miðnætti, en á nóttunni er beint
samband við farþegaafgreiðsluna.
Svo eigum við frí þriðju hverja
helgi frá föstudagskvöldi til mánu-
dagskvölds.
— Og ertu ánægð með þau
laun, sem þú færð fyrir þessa
vinnu?
— Símastúlkur heyra undir
Verzlunarfélag Reykjavíkur með
laun og kjör og eru þar í 4. launa-
flokki, en Loftleiðir borga 15%
umfram þann taxta. Þá fáum við
greitt 33% vaktálag á 2/3 hluta
launanna.
— Hvaða kröfur eru gerðar til
starfsins?
Hér hjá Loftleiðum er ensku-
kunnátta skilyrði, og að sjálfsögðu
er okkur ætlað að kunna almenn-
ar kurteisisvenjur.
— Eru þér gefin fyrirmæli um
að þéra þá, sem hringja?
— Nei, ekki eru nú nein fyrir-
mæli um það, en engu að síður
geri ég það alltaf, sé um ókunn-
uga að ræða.
— Og finnst þér menn kunna
að þéra á móti?
— Já, flestir kunna það, ann-
ars er það misjafnt og skiptir mig
raunar engu máli, þó að þúað sé
á móti.
— Kemur ekki stundum fyrir,
að menn séu heldur málgefnir,
þegar mikið er að gera og aðrir
þurfa að komast að?
— Það getur komið fyrir, og
fólk er oft lengi að útskýra við
hvaða deild það vilji fá samband.
En þetta veldur engum örðugleik-
um, því að sé margt á línunni,
segi ég bara augnablik og gef
þeim næsta samband.
— Væri mér óhætt að ræða
mikilvæg leyndarmál við ein-