Frjáls verslun - 01.02.1970, Blaðsíða 33
FRJÁLS VERZLUNT
33
Matsveinar og 'þjónn að störfum.
— Lágmarksaldur er 15 ár,
og þeir verða að hafa lokið
miðskólaprófi. Þá tökum við
við og kennum þeim t. d. ís-
lenzku, dönsku, ensku, frönsku,
bókfærslu, reikning, efna- og
eðlisfræði, næringarefnafræði,
réttaþekkingu, vínþekkingu,
borðskreytingu, teiknun og
teikniskrift. Til þessa höfum
við þrjá fastráðna kennara, og
eftir áramót eru fimm stunda-
kennarar.
— Nú er stundum kvartað
yfir, að íslenzkir þjónar séu
ekki nógu kurteisir?
— Já, og því miður hefur
það við rök að styðjast í sum-
um tilfellum. Flestir eru raun-
ar ágætir starfsmenn að mínu
áliti, en það er auðvitað mis-
jafn sauður í mörgu fé. Við er-
um nú að reyna að ráða bót á
þessu að einhverju leyti, með
því að takmarka það hvaða hús
hafa réttindi til að hafa lær-
linga, sem geta orðið fuilgildir
framreiðslu- eða matreiðslu-
menn, að loknum vinnutíma
þar og skólanámi.
— Hvert er brýnasta verk-
efni skólans í dag að yðar áliti?
— Má ég þá byrja á að segja
að fyrst þurfum við að komast
í almennilegt húsnæði. Eitt
brýnasta verkefnið er tvímæla-
laust að víkka starfssvið skól-
ans, þannig að t. d. séu haldin
námskeið fyrir herbergisþern-
ur, þá, sem annast gestamót-
töku, og afgreiðslustúlkur í
buffi. Það þýðir ekki að taka
bara tvær stéttir og þjálfa þær
í réttum siðum. Einnig þurfum
við að gefa meiri gaum að
strjálbýlinu. Við höfum að vísu
verið með námskeið úti á landi,
en ekki nærri nóg. Ferðamenn
munu þeytast um landið þvert
og endilangt, og þá verður að
vera þjálfað starfsfólk til að
annast þá, á hótelum og veit-
ingastöðum.
— Hvað stækkun skólans
viðvíkur, var á síðasta alþingi
heimilað ián til húsakaupa, og
við höfum von um skólastofu í
hinu nýja hóteli í húsi Kr.
Kristjánssonar, en þetta er ekki
ákveðið enn.
— Og að lokum Tryggvi,
hvernig líst þér á ísland sem
ferðamannaland?
— Ég hef mikla trú á að
hægt sé að laða ferðamenn
hingað, en það kostar auðvitað
miklar fjárfestingar til að
byrja með. Við verðum að
byggja hótelin fyrst. í því
sambandi vildi ég minnast á, að
þegar verið er að byggja heima-
vistarskóla finnst mér sjálfsagt
að tekið sé tillit til þess í bygg-
ingu, að hann kynni að verða
notaður sem sumarhótel. Því
miður er þetta ekki enn al-
mennt. Og þegar öll hótelin
eru risin, þarf að sjálfsögðu
mikið af góðu fólki til starfa i
þeim. Það verður hlutverk
Matsveina- og veitingaþjóna-
skólans að mennta bað fólk, og
til að hann geti það þarf starfs-
aðstaða hans að batna til muna.
Vonandi missum við ekki af
strætisvagninum í því tilliti.
SYKUR,
HVEITI og
KORNVÖRUR,
niðursoðnir,
þurrkaðir
og nýir
AVEXTIR
ávallt fyrirliggjandi.
Sig Þ. Skjaldberg hf.,
Laugavegi 49,
Reykjavík.
Sími 11491 (3 línur).
Símnefni:
SKJALDBERG
Á Hólmavík,
Drangsnesi og
Kaldaðarnesi
• Seljum allar fáanleg-
ar nauðsynjavörur á
liagstæðu verði.
• Kaupum íslenzkar
framleiðsluvörur.
• Höfum umboð fyrir
SAMVINNUTRYGG-
INGAR og ANDVÖKU.
• Rekum innlánsdcild.
KAUPFÉLAG
STEINGRÍMSFJARÐAR