Frjáls verslun - 01.02.1970, Page 34
/
Engin er
góðferð án
lyrirliyjfifju**
Því aðeins njótið þér ferðagleði að þér skiljið óhyggjurnar eftir
heima. Vanir ferðamenn tryggja sig og farangur sinn óður en ferð
er hafin. Ekki þarf nema nokkur orð í tíma töluð — í síma 17700
— og þér hafið ferða- og farangurstryggingu fró Almennum trygg-
ingum. Trygging er nauðsyn.
MENNAR TRYGGINGAR P
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SflVII 17700
• LÖG UM FERÐAMÁL
Núgildandi lög um ferðamál
eru nr. 4/1969. Þau eru að meg-
inefni byggð á lögum um ferða-
mál nr. 29/1964 með nokkrum
breytingum í kaflanum um al-
mennar ferðaskrifstofur. Þetta
er í raun fyrsta tilraun til al-
mennra heildarlaga um ferða-
mál á fslandi; þó er rétt að
geta laga um Ferðaskrifstofu
ríkisins nr. 33/1936 ásamt
breytingu á þeim lögum nr. 20/
1947.
Samkvæmt lögunum nr. 33/
1936 var Ferðaskrifstofu ríkis-
ins veittur einkaréttur á fyrir-
greiðslu hérlendis vegna ferða
erlendra ferðamanna, þó með
þeirri imdantekningu, að fyrir-
tæki, sem störfuðu á þessum
vettvangi við gildistöku lag-
anna, mættu starfa áfram.
Verða áhrif þeirrar ráðstöfun-
ar á íslenzk ferðamál ekki rak-
in nánar hér.
Á árabilinu milli 1950 og
1960, samfara breyttum þjóð-
félagsháttum og auknum sam-
göngum, fór að örla á ýmis
konar starfsemi í þá átt að ann-
ast og auka ferðalög íslendinga
til útlanda, en slík ferðaþjón-
usta fór ekki í bága við þá-
gildandi lög um Ferðaskrif-
stofu ríkisins. Fór einkarekstur
á þessu sviði mjög vaxandi, og
sérstaklega eftir 1960 færðist
mikið líf í þessa atvinnugrein.