Frjáls verslun - 01.02.1970, Qupperneq 62
62
FRJALS VERZLLIN
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
TEPPAHUSIÐ
*
SUÐURLANDS-
BRAUT 10
*•
SÍMI 83570
DIRECTORY OF
ICELAND 1969-70
ER KOMIN ÚT
SENDIÐ ERLENDUM VIÐ-
SKIPTAVINUM BEZTU HAND-
BÓKINA ER KEMUR ÚT Á
ENSKU.
ÍSLENZK ÁRBÓK
FÍLAGSPRENTSMIÐJUNNI
SPÍTALASTÍG 10 S. 11640
markinu, án þess að hafa
nokkru sinni lent á mánaðar-
lista. A árslistann bætum við
einnig upplýsingum um dóma,
uppboðsauglýsingar, skráning-
ar og fleira þessu viðkomandi.
Á árs.listanum fyrir 1969 eru
tæplega 500 fyrirtæki og er það
svipaður fjöldi og árið 1968,
þegar þessi listi kom fyrst út.
Eru afsagnir víxla algengar
á fslandi?
Svar: Árið 1968 voru afsagn-
ir í Reykjavík einni 37.959, í
fyrra voru þær nokkuð færri,
eða 35.704. Á sama tíma voru
afsagnir í höfuðborgum hinna
Norðurlandanna fæstar um
5.300 en flestar um 6.400. Þess-
ar tölur bera með sér, að við
skörum langt fram úr öðrum
þjóðum í þessu tilliti! Hins ber
svo að gæta, að notkun víxla á
íslandi, eins og að framan er
getið, er líklega meiri en víðast
hvar annars staðar. Ein af or-
sökum þess er vafalaust sú, að
víxlinum er ætlað að vera ör-
uggara greiðsluform en önnur.
Hins vegar vaknar sú spurning,
hvort svo sé, þegar þessi mikli
fjöldi afsagna er athugaður.
Verði hins vegar að því, að við
förum að fylgjast betur með
vanskilum, má reikna með þvi,
að þetta öryggi verði þá fyrst
að veruleika.
Er það mögulegt, að allar
þessar afsagnir séu vegna þess,
að viðkolmandi aðilar geti ekki
staðið í skilum?
Svar: Mig grunar, að hjá
sumum fyrirtækjum séu af-
sagnir oft einber trassaskapur.
í fyrra sendum við hverju fyr-
irtæki á árslistanum okkar
bréf. Við gerðum þar grein fyr-
ir markmiði okkar og skoruð-
um á fyrirtækin að forðast af-
sagnir eftir megni, jafnframt
því, sem við gáfum þeim kost
á að koma athugasemdum sín-
um á framfæri. Við fengum
upphringingar frá mörgum
þessara fyrirtækja og komu þá
í ljós margs konar orsakir til
afsagna. Oft er öðrum um að
kenna en stjórnendum fyrir-
tækjanna, og má þá bæði nefna
vangá ýmissa starfsmanna fyr-
irtækjanna og jafnvel bank-
anna sjálfra. Við tilkomu upp-
lýsinga tel ég að þessir gallar
verði fljótlega lagfærðir og að