Frjáls verslun - 01.04.1971, Blaðsíða 36
GREINAR OG VIÐTÖL FRJÁLS VERZLUN NR. 4 1971
36
Verzlun, þjónusta
Hekla hf. er að sprengja utan
af sér 18.400 rúmm. húsnæði
„Við verðum að leigja út skrifstofuhúsnæði á sama tíma og ukkur
skortir húsnæði fyrir ýmislegt annað“.
Viðtal við
Ingimund Sigfússon, forstjóra.
Sigfús í Heklu er nafn, sem
þarfnast ekki nánari skýringa.
Þó er Sigfús Bjarnason látinn
fyrir nær 4 árum. Hann lézt
fyrir aldur fram, á hátindi
framkvæmdamannsins í ís-
lenzku athafnalífi. Samhent
fjölskylda hans hefur haldið
merkinu uppi og hvergi látið
deigan síga. Elzti sonur Sig-
fúsar, Ingimundur, tók við
forstöðu Heklu hf., aðeins 30
ára gamall. Hann hefur einn-
ig tekið til hendinni, Hekla vex
áfram og er nú að sprengja ut-
an af sér 18400 rúmmetra hús-
næði, sem tekið var í notkun
fyrir 8 árum. Fyrirtækið er
forvitnilegt fyrir margra hluta
sakir, bæði í fortíð og nútíð.
FV heimsótti Ingimund Sigfús-
son forstjóra og ræddi við hann
um það, sem Hekla hefur ver-
ið og er, og einnig örlítið um
framtíðaráætlanirnar.
HEKLA STOFNUÐ 1933
FV: Hvert er upphaf Heklu
hf.?
IS: Faðir minn, Sigfús
Biarnason. stofnaði Heildverzl-
unina Heklu hf. 1933, og þá
með nokkrum fleiri mönnum.
Fyrstu misserin snérist rekstur-
inn mest um innflutning á
vefnaðarvörum og ávöxtum frá
Spáni. Þegar borgarstyrjöldin
þar brauzt út 1936, var^ við-
skintunum beint til Ítalíu,
Þýzkalands og Bretlands. og
keyptar þaðan svipaðar vörur.
Um sama leyti varð faðir
minn aðaleigandi fvrirtækisins,
það hefur verið fiölskyldufyrir
tæki síðan. Jafnframt hóf fað-
ir minn umsvifamikinn verk-
smiðiurekstur, stofnaði m. a.
Vinnufataverksmiðjuna hf. og
Fataverksmiðiuna Herkules.
Sá rekstur stóð um árabil, en
var hætt, þegar Hekla hf. tók
að sér ný verkefni og aðstæð-
ur breyttust. Á árunum 1937-
1940 óx rekstur Heklu hf. mik-
ið, og var í stríðsbyrjun orðið
eitt af meiriháttar fyrirtækjum
hér á landi.
í ársbyrjun 1942 urðu á ný
breytingar. Hófst þá innflutn-
ingur frá Bandaríkjunum, og
Hekla hf. opnaði skrifstofu í
New York í því sambandi.
Fluttar voru inn fleiri vöru-
tegundir. m. a. var þá bætt við
raftækjum og vélum, og til
þess að sjá um sölu og dreif-
ingu þeirra var stofnuð Véla-
og raftækiaverzlunin Hekla.
Eftir heimsstyrjöldina var
s'ðan innflutningnum beint í æ
ríkara mæli að vélum margs
konar. Hafin var innflutning-
ur á bílum, bungavinnuvélum
og landbúnaðartækjum til við-
bótar við innflutning heimilis-
tækia. Og má segia, að þar
með hafi framtíð Heklu hf. ver-
ið ráðin. Ýmsar utanaðkom-
andi aðstæður höfðu þá kallað
á breytingar æ oni æ, og bíla-
og vélainnflutningur orðið of-
an á.
TÍMAMÓT 1952.
Árið 1952 urðu enn tíma-
mót í sögu Heklu hf., en nú á
nokkuð annan veg. Faðir minn
keypti megnið af hlutabréfum
í fyrirtækinu P. Stefánsson
hf., sem hafði starfað frá 1908.
í kaupunum fylgdi mjög gott
hús að Hverfisgötu 103, og þar
með komst Hekla hf. í eigið hús
næði. Starfsemin var þarna tii
1963.
STÓRHÝSI 1963.
FV: Og þá var flutt í stór-
hýsið við Laugaveg?
IS: Já, rekstur Heklu óx
hratt, sérstaklega í innflutningi
bíla, þungavinnuvéla og ým-
issa annarra véla. þ. á. m. véla
í báta og skin. Innfiutningur
landbúnaðarvéla var og mikill
:im tíma. en s’ðan varð að
fækka vélagerðunum. til að
unnt væri að standa undir
góðri þiónustu. og þá var dreg-
ið úr innflutningi á landbún-
aðarvélum. Þegar bvgging
hússins hér við T-augaveg hófst.
voru enn í gildi hömlur og
levfisveitingar. Það fékkst þó
að bvggja. en ekki eins og bezt
hefði verið, og húsið nýtist okk-
ur því ekki eins og skyldi.
Þetta eru 18.400 rúmmetrar, og
það er út af fyrir sig töluvert
húsrými. En skipting hússins
er óhentug á margan hátt.
DEILDASKIPTING.
FV: Rekstrinum var breytt,
þegar þið fluttuð 1963.
IS: Þá var tekin upp deilda-
skipting, sem hefur haldizt
síðan og verið nánar útfærð
eftir því, sem reynslan og enn