Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1971, Blaðsíða 16

Frjáls verslun - 01.05.1971, Blaðsíða 16
16 ÚTLÖND FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971 Mest fékkst fyrir vínbók á þýzku, sem var þýdd úr latínu eftir verki Arnoldusar Villa- nova. sem skrifað var á mið- öldum. Verkið var fyrst gefið út í Ulm árið 1499 og var bund- ið í útskorið tré. Það seldist á 660 þúsund. Aðeins er vitað um þrjú eintök af þeirri bók. Myndskreytt handrit að matreiðslubók eftir ítalskan höfund, sem var uppi á 15. öld og fjallar um matreiðslu fyrir fólk, sem þarf megrunarkúr, en einnig um hvernig framreiða eigi kræsingar, seldist á um 550 þúsund kr. „Nýja Mat- reiðslubók“ Max Rumboldts, sem gefin var út 1581, seldist á um 370 þúsund. Ein elzta matreiðslubók. sem vitað er um í heimi, og sem var skrifuð á 2. öld og lýsti matreiðsluháttum í Róm, seld- ist á um 220 þúsund krónur. Sú bók var gefin út í kringum árið 1500. Danmörk Og nú eru það lögfræði- miðstöðvar Mogens Glistrup hæstarétt- arlögmaður í Kaupmannahöfn er að byggja upp lögfræði- miðstöð. Stórrekstur er leið nútímamannsins, segir Mogens, og nú er komið að lögfræði- þjónustunni. Ég hef þegar 30- 40 manns í störfum á skrif- stofu minni, og fyrir árslok reikna ég með að starfsfólki hafi fjölgað um helming. Enn- þá er ég í leiguhúsnæði við tvær götur, en ég stefni að því að komast í tilheyrandi hús- næði áður en langt um líður. Það sem í rauninni býr á bak við þetta, segir Mogens ennfremur, er sú staðreynd, að sér'hæfing á öllum sviðum vex dag frá degi. Þess vegna verða lögfræðingar að gera annað tveggja. vera einir sér með af- markaðan vettvang eða starfa saman hver með sitt hlutverk. Með því að koma upp lögfræði- miðstöð gef ég viðskipta- vinunum kost á að fá í hverju tilviki þá þjónustu, sem hent- ar þeim bezt. Þetta er t.d. mik- ilvægt fyrir fyrirtæki, sem teygja sig út í marga þætti þjóðlífsins. Við getum boðið upplýsingar um hvaðeina og hvers konar aðstoð lögfræði- legs eðlis, og með samstarfinu kostar það viðskiptavinina miklu minni en ella. Hafa naumast ef ni á að gista á eigin hótelum Gisting á hótelum í Kaup- mannahöfn er nú orðin það dýr, að Danir hafa naumast efni á því sjálfir að gista þar. Þetta kemur nú m.a. fram í minnkandi heimsóknum „utan- bæjarmanna“. Ferðamálaráðið hefur gefið út upplýsingar um hótelverð 1971, og kemur þar fram, að meðalverðið fyrir tveggja manna herbergi á hóteli á höf- uðborgarsvæðinu kostar 200 danskar krónur á nóttu. Dýr- ast er að gista á Palace Hotel, þar er verðið 215-315 d.kr. fyr- ir tveggja manna herbergi. Raunar er gisting á SAS-hótel- inu og Royal og hinu nýja Sher- aton hlutfallslega enn dýrari, ef um einstakling er að ræða, hann verður að borga þar 180 d.kr. á nóttu. Ódýrast er hins vegar að gista Absalon í Helgo- landsgade, þar er tveggja manna herbergi á 65 d.kr. Og auðvitað er hægt að velja um mörg verð þarna á milli. í öllum hótelverðunum er það sama innifalið, þ.e. gisting, morgunmatur, 15% þjónustu- gjald og 15% söluskattur. En aðbúðin og þjónustan er hins vegar af mismunandi gæðum, og þar er skýringin á verðmis- muninum fyrst og fremst. • JUMBO- fæðið í tonnatali Nýjasta þota SAS, Boeing 747 eða Jumbo, hefur kallað á nýja og stórvirkari tækni hvað snertir birgðahald af mat og drykk fyrir farþega og áhöfn. Það er sitt af hverju sem þarf að hafa í handraðanum, þegar flogið er heimsálfa á milli með slíkum risafugli; 750 máltíðir, 850 dósir af öli og öðrum létt- um drykkjum, 300 lítra af áfengi. 750 bolla af kaffi og te, slatta af hnetum, ávöxtum og súkkulaði. Alls er það um eitt tonn af mat og drykk, sem þarf að hafa um borð við flug- tak, undir venjulegum kring- umstæðum. Til þess að koma öllu þessu um borð me-ð bolanlegu móti, keypti SAS Catering (stærsta flugeldhús Norðurlanda) sér- stakar lyftur, EDBRO Jumbo Hi-Lifts, frá EDBRO Europa i Hollandi, sem hefur sérhæft sig í smíði þrýstilyftna. Ein lyfta af slíkri gerð. lyftir 3600 kílóum í einu. Með slíkri tækni er fljótlegt að lyfta birgðunum þessa P metra upp í gaphúsið á Jumbo. i Grænland Stórefiing at- vinnureksturs í Godtháb Um þessar mundir er að hefjast undirbúningur að gerð 11.5 hektara landssvæðis fyrir nýjan atvinnurekstur í Godt- háb. Á að fylla upp við Norð- Hluti af Godtháb.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.