Frjáls verslun - 01.05.1971, Blaðsíða 40
40
GREINAR OG VIÐTÖL
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
Eru flugleiðirnar sem hér
segir. Mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga er
flogið til Glasgow og
Kaupmannahafnar.
Mánudaga og fimmtu-
daga er flogið til Kaup-
mannahafnar í sambandi
við Grænlandsflug. —
Miðvikudaga, fimmtu-
daga, föstudaga. laugar-
daga og sunnudaga er
flogið beint til Kaup-
mannahafnar. — Mánu-
daga og laugardaga er
beint flug til Glasgow. —
Þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga
er beint flug til London.
— Flogið verður til
Frankfurt á laugardögum
í sumar. Laugardaga
verður flogið til Glasgow
með viðkomu í Færeyjum
en einnig verður flogið
til Færeyja á þriðjudög-
um.
Flestar þessara ferða
verða hafnar í byrjun
júní. en beinar ferðir til
Glasgow á laugardögum
byrja ekki fyrr en 26.
júní og á mánudögum
hálfum mánuði seinna.
Fimmtudagsferðirnar til
London byrja 1. júlí og
ferðirnar til Frankfurt
byrja 19. júní.
Eimskipafélag íslands:
Að venju heldur Eim-
skipafélagið uppi skipa-
ferðum til Leith og Kaup-
mannahafnar. Ferðir eru
allt árið en á sumaráætl-
un er ekki komið við í
Þórshöfn í Færeyjum
eins og gert er yfir vetr-
armánuðina. Áætlaðir
brottfarardagar Gullfoss
til Leith og Kaupmanna-
hafnar í sumar eru 2., 16.
og 30. júní, 14. júlí, 4. og
18. ágúst og 1. og 15. sept.
LRVAL:
Mallorca
Ferðaskrifstofan Úrval var stofnuð á sl. sumri og mun hún
leggja fyrir sig alla almenna ferðaþjónustu. Einu hópferðirnar
sem skrifstofan sér algerlega um enn sem komið er, eru ferðir
til Mallorca og voru farnar tvær slíkar ferðir á sl. ári.
Á þessu sumri eru ákveðnar fimm slíkar Mallorcaferðir. Hálfs
mánaðar ferðir verða þrjár, 3. ágúst, 1. sept. og 15. sept. Ein
sextán daga ferð verður farin 17. ágúst og 22 daga ferð verður
farin 29. sept. Hægt er að fá ferðir þar sem bíll er innifalinn í
verðinu. Kosta þær ferðir 12.800 til 14.550 kr. eftir lengd ferð-
arinnar en þá er ekkert annað innifalið. Hálfsmánaðar ferð
kostar annars 17.900 til 27.600 kr. eftir því hvernig menn kjósa
að búa.
Ferðaskrifstofan Úrval hefur einnig svokallaðar I.T. ferðir á
boðstólum. Slíkar ferðir eru byggðar upp á samstarfi margra
flugfélaga og þykja ódýrar hópferðir. Með þessum ferðum er
hægt að komast til fjölda margra Evrópulanda svo sem Norður-
landanna, Englands, írlands, Skotlands, Hollands, Portúgals,
Spánar og Austur Evrópulanda svo sem Tékkóslóvakíu, Júgó-
slavíu og Grikklands. Auk þess er hægt að komast með I.T.
ferðum til landa utan Evrópu.
Loks má geta þess að ferðaskrifstofan Úrval skipuleggur að
sjálfsögðu hvers konar einstaklingsferðir eftir óskum hvers og
eins.
Frá Mallorca.