Frjáls verslun - 01.05.1971, Blaðsíða 61
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
61
drætti og happdrætti um hluti.
Happdrætti Háskólans er eina
happdrættið, sem er peninga-
happdrætti. en önnur hafa þró-
azt svo mjög í sömu átt, að
lítill munur er á þeim. Þá er
alltaf fjöldi happdrætta í gangi
um bíla og aðrar eignir. Hér
hefur ágóði happdrætta farið
í menningarstarfsemi, líknar-
starfsemi og stjórnmálastarf.
Hafa þau því létt byrðum af
ríkinu og koma því ekki ólíkt
út og ríkishappdrætti gera.
Mörg lönd hafa rekið ríkis-
happdrætti lengi, t.d. írland og
Malta. Breiðast þau nú ört út.
Til dæmis stofnaði New York-
ríki happdrætti fyrir rúmu ári
og hefur þegar haft tugmilljóna
tekjur af. Fyrir fáum vikum
var stofnað happdrætti í New
Jersey og mynduðust þegar
langar biðraðh' fólks, sem vildi
kaupa miða. í Bandaríkjunum
eru nú mörg riki að athuga
möguleika á ríkishappdrættum.
Tekjur af öllum ríkishapp-
drættum í Bandaríkjunum til
þessa hafa farið til mennta-
mála.
Miklu umdeildara hefur ver-
ið, hvort leyfa eigi veðmál ut-
an kappreiðabrauta. Voru þau
leyfð fyrir nokkru í Bretlandi
og í Bandaríkjunum hefur New
York-ríki leyft þau. Hefur
þetta gefið svo mikið í aðra
ihönd, að margir aðrir hafa
áhuga.
i»ví því
EKKI? Cavalier EKK(?
Bein fjárhættuspil hafa tíðk-
ast lengi í mörgum Evrópulönd-
um og fer þeim fjölgandi. Til
dæmis voru þau lögleidd í Eng-
landi fyrir aðeins fáum árum.
I Bandaríkjunum leyfir aðeins
eitt ríkjanna f járhættuspil,
Nevada, og hafði af því skatta-
tekjur á síðasta ári, sem námu
um 12.500 krónurn á hvert
mannsbarn í ríkinu. Mikið aí
þessum tekjum kemur frá fólki
úr nágrannaríkjunum, sem líta
þess vegna fjárhættuspil heima
fyrir, æ hýrara auga.
Það er athyglisvert. að eitt
fjárhættuspil hefur tíðkast hér
um árabil, óátalið, og raunar
undir nokkru ríkiseftirliti, þar
sem íþróttahreyfingunni mun
hafa verið veitt sérstakt leyíi
til að stunda það. Það er
bingó, sem er nokkuð útbreitt
hér og nýtur vinsælda innan
viss hóps. Bingó er í eðli sínu
fjárhættuspil, þó að ekki reyni
það á snilli og sé algerlega háð
tilviljunum.
Litmyndirog
Kodak Svart / hvítt
á 2 dögum
HANS PETERSEN H.F.
BANKASTRÆTI 4 SÍMI 20313
OG ÁLFHEIMUM 74
SÍMI 82590