Frjáls verslun - 01.05.1971, Blaðsíða 41
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
41
FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS:
Róm, Sorrento og
vínuppskeran
Vínuppskera.
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur á boðstólnum IT-einstaklings-
ferðir, auk hópferða frá Kaupmannahöfn í samvinnu við dönsku
ferðaskrifstofuna Tjæreborg Rjeser, til 116 ákvörðunarstaða í
Evrópu, Asíu og Afríku. Af þessum ferðum hefur svonefnd
Rom-Sorrento ferð notið mestra vinsælda. Ferð þessi kostar frá
25.650.00 kr. og innifalið er flugferðin Reykjavík—Kaupmanna-
höfn—Róm og til baka, gisting, hálft fæði í Róm og fullt fæði
í Sorrento.
Sérstæðasta ferðin, sem Ferðaskrifstofa ríkisins býður upp á
er svonefnd vínuppskeruferð, 12 daga ferð, þar sem landakortið
víkur fyrir vínkortinu ef svo má segja. Er ekið frá Kaupmanna-
höfn suður til vínekra Þýzkalands, og Frakklands en tilgangur
ferðarinnar er að bragða hin ýmsu léttu vín sem þarna eru
framleidd, skoða fornar hallir með geysistórum víngeymslum
og njóta fagurs landslags. Kostar ferðin 24.100.00 kr.
Auk skipulagningar á IT- og hópferðum býður Ferðaskrifstofa
ríkisins upp á fjölbreytta þjónustu í sambandi við flugfarseðla
hótelpantanir, útvegun á farmiðum með skipum, bílum og járn-
brautum.
Péturskirkjan í Róm.
Tryggingar eru
nauðsynlegar
Allar ferðaskrifstofur
sem skipuleggja ferðir til
útlanda svo og öll trygg-
ingafélög veita ferða-
tryggingaþjónustu. Al-
gengast er að tryggja sig
fyrir 1 milljón króna þeg-
ar um er að ræða styttri
utanlandsferðir t.d. %
mánaðar ferð. Kostar hún
um 550 kr. Áríðandi er að
athuga hvort sjúkratrygg-
in er jafnframt innifalin
í ferðatryggingunni því
sjúkrakostnaður víða er-
lendis er hár ef eitthvað
kemur fyrir. Ef sjúkra-
tryggingu er bætt við
ferðatrygginguna má
reikna með að heildar-
kostnaður við trygging-
una hækki um ca. 35%.
Ráðlegt er fyrir þann
sem fer til útlanda að -
tryggja farangur sinn.
Þá má benda á það að
öll flugfélög verða að
tryggja farþega sína svo
og farangur þeirra. Lág-
markstrygging fyrir flug-
far mun vera 25 þúsund
dollarar, en algengt er að
flugfélög tryggi farþega
sína fyrir 75 þúsund doll-
ara, á meðan á flugi
stendur.
100- e&a 60 pund
í gjaldcyri
Þær reglur gilda um
gjaldeyriskaup. að hægt
er að fá 100 pund eða
jafngildi þeirra til styttri
ferða utanlands með
framvísun á farseðli.
Hins vegar er ekki hægt
að kaupa nema 60 pund
ef hótelkostnaður er inni-
falinn í verði farseðilsins.
Vai'legast er að kaupa
gjaldeyrinn með góðum
fyrirvara.
Notkun ferðatékka hef-
ur farið mjög í vöxt á
undanförnum árum og
veitir hún farþegum auk-
ið öryggi þar sem enginn
getur leyst út tékkana
nema eigandinn sjálfur
hafi áritað þá.