Frjáls verslun - 01.05.1971, Page 25
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
25
mismunandi sviðum, sem ver-
ið hafa efst á baugi á ýmsum
tímum. kemur nú öll til nota,“
segir Bjarni Bragi. „Efnahags-
stofnunin var stofnuð í júní
1962.. í sambandi við stjórnar-
skipti og efnahagsaðgerðir ár-
in 1959 og 1960 var stofnað
sérstakt efnahagsráðuneyti,
sem Jónas Haralz veitti for-
stöðu. í framhaldi af aðgerð-
unum sáu menn þörfina á að
hafa lengri tímavídd í huga
við úrlausn efnahagsmála,
beita áætlanagerð og yfirsýn
fyrir lengri tíma. Hagdeild
Framkvæmdabankans þáver-
andi hafði mest starfað að
þjóðhagsreikningum. Fjórir
norskir sérfræðingar komu
hingað árið 1961. Gerð var
fjögurra ára þjóðhags- og fram
kvæmdaáætlun, sem kom fram
1963. Þá var sýnt, að ætti að
verða fram'hald á slíku starfi
jafnframt því að sterk tengsl
yrðu milli hagstjórnar og nauð-
synlegrar gagnaúrvinnslu, væri
skipulagsbreyting æskileg.
Efnahagsstofnunin var þá sett
á fót, efnahagsráðuneytið lagt
niður og starfsemi hagdeildar
Framkvæmdabankans lögð til
stofnunarinnar.
Frá upphafi voru ríkisstjórn-
in, Framkvæmdabankinn (síð-
ar Framkvæmdasjóður) og
Seðlabankinn hver um sig
þriðjungsaðili að rekstri Efna-
hagsstofnunarinnar. Þannig
fékkst strax í upphafi sterk
starfseining, án þess að þrýsta
þyrfti á fjárlög. Starfsemi
stofnunarinnar hefur alla tíð
heyrt undir forsætisráðherra
og verið hliðstæð því, að um
ráðuneyti sé að ræða.
Lög um Efnahagsstofnunina
voru sett 1966 á sama tíma og
Hagráð var stofnað og Fram-
kvæmdabanka breytt í Fram-
kvæmdasjóð. Stjórn stofnunar-
innar er skipuð fulltrúum
Seðlabankans og Framkvæmda-
sjóðs, hagsýslustjóra, hag-
stofustjóra og mér.
f fyrstu var megináherzla
lögð á að fylgia fram starfinu
í sambandi við þióðhags- og
framkvæmdaáætlunina. Tekizt
hafði með mvndarlegu átaki
að koma þióðhagsreikningum i
frambæriiegt form. Síðan hef-
ur reglulega verið starfað að
þióðhagsreikningum og skýrsl-
um um fjárfestingu og neyzlu
og þess háttar. Mikið starf
hefur verið unnið við hagrann-
sóknir, skýrslur unnar um
þjóðarauð og stöðugt ítarlegri
Bifreiðastöð íslands
Umferciirmiðstöðinni við Hringbraut.
Afgreiðsla allra sérleyfisbíla, sem aka
til og frá Reykjavík.
Hópferðabílar af öllum stærðum
alltaf til leigu.
Pakkar teknir til flutninga.
Veitingastofa — Söluturn — Nætursala.
B.S.Í. Sími 22300
iiisting, veitingar
é Selfossi
A styttri viðkomu bjóðum við
yður pylsur, öl og sælgæti, ís o. fl.
og alltaf B.P. benzín og olíur.
Hótel TRVGGVA8KALI
Tryggvatorgi, Selfossi. — Sími 99 1408.
Ferðamenn
á Suðurlandi
Heitur matur, kaffi, smurt brauð, kökur, öl og
fleiri veitingar.
Njótið góðra veitinga og góðrar þjónustu í glæsi-
legum liúsakyinnum og á sögufrægum og fögrum
slóðum.
Félagsheimilið HVOLL
Hvolsvelli. Sími 99 5144