Frjáls verslun - 01.05.1971, Side 50
50
GREINAR OG VIÐTÖL
FRJÁLS VERZLUN NR. 5 1971
Stjórnun
Hversu góð er starfsnýting þín?
Ef ein'hver segði að þú gætir
aukið nýtingu starfshæfni
þinnar um 10%, yrðir þú lík-
lega móðgaður. Flestir okkar
vilja helzt trúa því, að starfs-
nýtingin sé eins mikil og hún
getur orðið. Það er þó stað-
reynd að dýrmætar klukku-
stundir fara forgörðum í hverri
viku vegna óþarfa atvika, ó-
þarfra truflana og þreytu sem
slæmir vinnuvanar auka.
Allir þeir sem við viðskipti
fást, og eru einhvers virði,
nota mestallan tíma sinn til að
finna leiðir til að gera fyrir-
tækið arðbærara. En nýting
starfshæfninnar byrjar heima.
Fyrsta þrepið og hið mikilvæg-
asta — er að hefja á hæsta
stig sína eigin vinnuaðferð.
Spurningin er hvar eiga
þeir að byrja í því tilliti? Líf-
fræðilegar og sálfræðilegar
rætur mannsins ná aftur í forn-
sögu, þegar frummaðurinn afl-
aði sér viðurværis með veið-
um. Það hefur verið nauðsyn-
legt fyrir hann að vera mjög
virkur, sífellt á ferðinni í mat-
arleit. Þróunin til kyrrsetulífs
stórborganna, á síðastliðnum
5000 árum, hefur ekki breytt
grundvallaratriðum líkams-
byggingar mannsins, Hreyfing
er enn mikilvæg. Dr. Paul
Dudley White, ráðleggur ein-
dregið líkamsrækt til að halda
hjartanu og öðrum vöðvum í
góðri þjálfun. Sálfræðingar
ráðleggja einnig hreyfingu,
þar sem hún minnkar þreytu
og spennu.
Fyrsta ráðlegging: Hversu
önnum kafinn sem þú ert,
skaltu nota öll tækifæri til að
hreyfa þig. Sittu ekki í stóln-
um allan daginn, stattu upp
frá skrifborðinu öðru hvoru.
Líttu ekki á kaffihléð sem ergj-
andi ávana lægra settra starfs-
manna. Það er tækifæri til að
hvíla hugann á þreytandi
vandamáli, og koma endur-
nærður og hugmyndaauðugri
til baka. Taktu þér sjálfur
kaffihlé. Og sendu ekki einka-
ritarann þinn eftir kaffi,
sæktu það sjálfur. Þú þarft að
breyta um umhverfi og teygja
úr vöðvunum, miklu frekar en
hún.
Það gildir sama um hádegis-
verðinn og kaffihléð. Forðastu
að borða samlokur við skrif-
borðið þitt, forðastu það eins
og þær væru eitraðar.
Framkvæmdastjóri sem
vinnur í matartímanum spar-
ar að vísu tíma í hádeginu en
fyrir þann tímasparnað verður
hann að borga með meiri
þreytu og almennt minni
starfshæfni þegar líður á dag-
inn. Gerðu þér að reglu að taka
klukkustundar matarhlé, en
eyddu henni ekki við að naga-
samlokur við skrifborðið.
Hversu mikilvæg sem matar-
og kaffihlé nú eru, geta þau
ekki komið í stað annarrar
hreyfingar á vinnudeginum.
Hagaðu vinnu þinni þannig að
þú þurfir að standa upp frá
skrifborðinu öðru hvoru. Hafðu
uppsláttarbækurnar og skýrsl-
urnar hinumegin í herberginu,
svo þú þurfir öðru hvoru að
standa á fætur til að ná í þær.
Einn vel þekktur sálfræðingur
geymdi orðabókina sína á hárri
hillu, til að fá meiri hreyfingu.
Önnur leið til að halda vöðv-
unum á hreyfingu er að velja
sér „snúningsstól“ frekar en
venjulegan stól. Snúningsstóll-
inn auðvedar þér mjög allar
hreyfingar, auk þess sem þú
losnar við hina óþægilegu
stífni í baki og fótum, sem þú
færð ef þú situr lengi í sömu
stellingum. Þegar þú velur þér
snúningsstól, skaltu eyða
nokkrum mínútum í að ganga
úr skugga um að hann sé rétt
stilltur. Sætið ætti ekki að vera
hærra en svo að þú getir auð-
veldlega og þægilega lagt oln-
bogana á skrifborðið, en ekki
svo hátt að það hindri blóðrás-
ina í lærunum í nánd við hnén.
Mundu að menn voru ekki
skapaðir með það fyrir augum
að þeir sætu í stólum, það er
stóllinn sem verður að aðlaga
sig að þér.
Skipuleggðu daginn.
Reyndu að fá eins mikið út
úr deginum og þér er unnt.
Til þess verður þú fyrst að
leggja niður fyrir þér að hverju
þú í rauninni stefnir. Eftir að
þú hefur komist að niðurstöðu