Frjáls verslun - 01.06.1971, Page 21
FRJÁLS VERZLUN NR. 6 1971
ÚTLÖND
21
Joe Darcy: Leigir mjólkurkýr til 12 mánaða í senn, hefur 250
kýr í leigu.
ar. Reynist kýrin illa, getur
leigjandinn skipt og fengið
aðra í staðinn. Leigutaki hefur
einnig forkaupsrétt að kúnni
og gengur þá hluti leigunnar
upp í kaupverðið ef bóndinn
vill kaupa hana. John Darcy,
segir að allir viðskiptavinirnir
virðist ánægðir með þessa
þjónustu.
Járnbrautarlestaleigan byrj-
aði í október sl., er útflutn-
ingsfyrirtækið Gargill Inc. tók
á leigu 115 vagna flutninga-
lest, til að flytja 10 þúsund
lestir af maís frá borginni Gib-
son í Illinois til hafnarborgar-
innar Baton Rouge í Luisiana-
fylki, þar sem korninu var
skipað um borð í flutningaskip,
er sigldi með það til V-Evrópu.
Önnur bandarísk útflutnings-
fyrirtæki hafa nú fetað í fót-
spor Cargills, og mikil aukn-
ing er talin framundan. Lest-
irnar flytja korntegundir frá
Illinois til hafnarborganna við
Mexicóflóa og hagstæð flutn-
ingsgjöld hafa gert það að verk-
um. að nýjir útflutningsmark-
aðir hafa opnazt, vegna þess
að unnt hefur verið að lækka
verðið. Talsmenn útflutnings-
fyrirtækjanna segja að með því
að nota lestirnar allan ársins
hring, sé komið í veg fyrir hinn
mikla skort á lestum á upp-
skerutimanum og útflutningn-
um jafnað yfir árið. Til þess
að gera slíkt mögulegt, hafa
fyrirtækin orðið að byggja
miklar geymslur og vinnslu-
stöðvar, en forráðamenn þeirra
eru sammála um að sú fjár-
festing sé mjög arðbær. Járn-
brautarfélögin, sem leigja lest-
irnar, njóta einnig góðs af, en
nýting lesta hefur orðið lélegri
með hverju ári undanfarið og
mörg járnbrautarfélög hafa
lent í slæmum kröggum og
hafa orðið að leggja lestum,
sem þau geta nú leigt og þann-
ig haft af þeim tekjur.
BLÓMAHOSIÐ
gefur yður kost á
margs konar skreyt-
ingum og miklu
blómaúrvali. ViS
viljum sérstaklega
minna yður á, aS viS
skreytum veizlusali
og ráSstefnusali.
Skreytum gjafa-
pakka, blómakörfur
og blómaskálar.
Skreytt af fagmanni,
sem unniS hefur viS
blómaskreytingar
í helztu blómalönd-
um Evrópu.
SKIPHOLTI 37
BLÓMAHÚSIÐ
SÍMI 83070