Frjáls verslun - 01.06.1971, Blaðsíða 29
FF.JALS VEUZLUN NR. 6 1971
GHEINAR OG VIÐTÖL
29
notfæra sér það. Hugmyndin
með framkvæmdalánunum er
að tryggja rekstur byggingar-
fyrirtækja. Húsnæðismála-
stofnunin hefur til þessa aðeins.
gert samninga um slíkar lán-
veitingar við fáeina aðila. sam-
tals um eitthvað milli 50 og 70
miiljónir króna. Þessi lán eru
veitt til 18 mánaða, þannig að
fé stoínunarinnar er bundið í
tiltölulega skamman tíma. Síð-
an ganga lán þessi til kaup-
enda íbúðanna, ef þeir fuil-
nægja venjulegum skilyrðum,
sem stofnunin setur lántakend-
um.
Vélvæðing eykur
framleiðni
Framleiðni eykur
Beiting fjármagns til íbúða-
bygginga á þennan hátt hefur,
sem fyrr segir, þá þýðingu, að
tryggja rekstur byggingafyrir-
tækja, en það er ljóst. að með-
an lánsfé er almennt af skorn-
um skammti. og hið sérstaka
húsnæðislánafé bundið væntan-
legum ibúðaeigendum sem ein-
staklingum, haía byggingafyr-
irtæki ekki möguleika á að ráð-
ast í meiriháttar framkvæmdir
og byggja upp þá tækni og þau
vinnubrógð, sem hagkvæmust
eru. Að vísu er 'hugsanlegt, að
byggingafyrirtæki geti þritizt á
samningum við opinbera eða
hálfopinbera aðila, eins og um
Breiðholtsframkvæmdirnar, en
slíkar framkvæmdir hafa a. m.
k. ekki enn verið af þeirri
stærðargráðu, að þær einar
tryggi næg verkefni og full-
nægjandi aðstöðu til sam-
keppni.
Frá sjónarmiði þjóðfélagsins
í 'heild. er það keppikefli, að
lækka byggingarkostnað en
jafnframt að fullnægja hús-
næðisþörf á hverjum tíma. Til
þess þarf í fyrsta lagi fjármagn,
og í öðru lagi byggingarsvæði,
tækni og vinnuafl. Sé fjár-
magnið fyrir hendi, svo og
byggingarsvæði, skiptir það
höfuðmáli, að fjármagnið sé
nýtt á hagkvæmastan hátt.
Leið einkaframtaksins er sú,
að byggja í meginatriðum sam-
fellt í stórum einingum, sem
vissulega geta verið af ýmsu
tagi og sniðnar við mismun-
andi þarfir. Þessi leið er e. t. v.
að opnast nú, með fram-
kvæmdalánum frá Húsnæðis-
málastofnun og hliðstæðri beit-
ingu húsnæðislánafjár frá öðr-
um aðilum. Þar er þá um
grundvallarbreytingu að ræða
frá því sem verið hefur, og ör-
ugglega stefnir þá í rétta átt
að þeim markmiðum. sem
Jceppt er að.
þjóðarhagvöxt
BREIÐHOLT h.f.
Lágmúla 9 - Reykjavík - Símar: 81550 - 81551 - 82340
SÓLÓ-
HLSGÖGIM
eru sterk og stílhrein
Seljum stálhúsgögn
í eldús,
félagsheimili,
skrifstofur
og víðar.
Sendum
í póstkröfu
hvert á land
sem er.
SÚLÓHIJSGÖGN HF.
Hringbraut 121 — Reykjavík — Sími 21832.