Frjáls verslun - 01.09.1971, Qupperneq 44
Sýningar
Fróðleg en ósamstæð vörusýning
Alþjóðlega vörusýningin —
Reykjavík 1971, stóð frá 26.
ágúst til 12. september. Nærri
þriðjungur þjóðarinnar, eða 64
þúsund manns, skoðaði sýning-
una, og gefur það vísbendingu
um, að hún hafi líkað í aðal-
atriðum vel. Erlendir sýnendur
undruðust mjög þessa aðsókn,
samanborið við fámenni þjóðar-
innar, og voru sammála því,
sem haldið hefur verið fram,
að hér væri um sérstakt fyrir-
bæri að ræða á alþjóðlegan
mælikvarða.
Margir sýnendur gerðu veru-
leg viðskipti meðan á sýning-
unni stóð, sumir langt um meiri
en við var búizt. Þorri sýnenda
var ánægður með árangurinn,
en hann á þó væntanlega eftir
að koma betur í ljós í kjölfar
sýningarinnar.
Afrakstur Kaupstefnunnar —
Reykjavík hf. var ekki mikill
eftir sýninguna, að sögn for-
ráðamanna. Kostnaður fór langt
úr böndum. Meginástæðan er
talin sú, að sýningin var mjög
viðamikil vegna fjölbreytninn-
AEG og Telefunken.
Húsgögn í poptjaldinu.
ar, og e. t. v. full ósamstæð.
Kaupstefnan — Reykjavík
hf. mun um næstu áramót
bjóða út heimilis- og matvæla-
sýningu haustið 1973. Standa
vonir til, að þegar sú sýning
verður haldin, verði búið að
byggja 1300 ferm. leikfimihús
við Laugardalshöllina, og að þá
verði aðstaða betri en nú til
þess að skapa samstæðari sýn-
ingu.
Úr brezku deildinni.
Frá Raftœkjaverzlun H. G.
Guðjónsson.
42
FV 9 1971