Frjáls verslun - 01.09.1971, Blaðsíða 68
Starfsþiálfun
Hæfni starfsfólksins ræktuð
Starfsþjálfun á sérhæfðum námskeiðum, við fullkomnar aðstæður
bætir sífellt þiónustuna og arðsemi hennar - SAS Training School heimsóttur
„Margs þarf búið við“, var
sagt í gamla daga um heimilin,
eins og þau voru, yfirleitt fjöl-
menn og urðu að vera að mestu
sjálfum sér nóg. Auðvitað á
þetta við ennþá, þótt flest sé
breytt. Og það má nú m. a.
heimfæra til fyrirtækjanna,
sem verða að spjara sig líkt og
stór 'heimili. Samhent starfs-
lið, sem þekkir og kann verk-
efni sín, er máttarstólpi hvers
fyrirtækis. Þess vegna þarf sí-
aukna menntun til þess að
standast kröfur í æ fjölþættara
atvinnulífi, en jafnframt sér-
hæfðara. Það er ei nóg nú orð-
ið að hafa sjálfsbjargarhæfi-
leika, nám er nauðsyn, nám í
skólum af einu eða öðru tagi,
og það ekki í eitt skipti fyrir
öll, heldur alla ævi, að segja
má. Að vísu erum við íslend-
ingar tæpast enn búnir að átta
okkur fyllilega á þessari sí-
felldu námsþörf, og m. a. þess
vegna er víðar pottur brotinn
en skyldi. En skilningurinn er
að vakna, eins og í ljós hefur
komið með áhuga á stjórnunar-
námskeiðum og fleiru í líkum
dúr. Á sumum sviðum og að
sumu leyti fylgjumst við með,
en almennt erum við enn á eft-
ir. Hver þáttur þarf að fylgja
í annars kjölfar, þar má hvergi
myndast tóm og auðn. Við
hljótum því innan tíðar að gera
gangskör að því að tengja
menntakerfið í órjúfandi heild
og um allt líf þjóðarinnar, þar
sem stefnumarkið verði nýt-
ing dýrmætra starfskrafta með-
an þeir endast, hvers við sitt
hæfi og með sem beztum ár-
angri í þjóðfélaginu.
Frá þessu sjónarhorni FV,
var það blaðinu hvalreki að fá
að kynnast lítið eitt SAS Tra-
ining School í Kaupmannahöfn
í vor, sem leið. Við vorum tveir
fulltrúar FV á leið til Líbanon
og Sýrlands með viðkomu i
Þýzkalandi og Grikklandi — og
auðvitað Kaupmannahöfn — í
boði SAS, Scandinavian Air-
lines System, sem ekki þarf að
kynna. Og SAS Training
School reyndist með því merk-
ara, sem á vegi okkar varð, þótt
af mörgu væri að taka í Aust-
urlöndum, þegar þangað kom.
Við nemendum blasa öll tœki
og gögn, sem mcdi skipta.
varpssal SAS Training School.
Á austurleið bjuggum við á
SAS-hótelinu Globetrotter í
Kastrup, en gegnt því blasti
við þessi skóli, sem við vissum
vart áður að til væri. SAS
Training School og hótelið
Globetrotter eru tengd fyrir-
tæki, því nemendur skólans
gista á hótelinu. Þegar til kom,
gátum við því að nokkru leyti
sett okkur í spor nemenda, þeg-
ar okkur gafst færi á að kynn-
ast hvoru tveggja. í skólanum
hittum við að máli næst æðsta
mann hans, Axel Lehmann, en
stjórnandi skólans, Per M. Tprr-
ing, var í sumarleyfi, enda hlé
á starfseminni.
1500 NEMENDUR Á VETRI
SAS Training School er rek-
inn í þeim tilgangi, að þjálfa
sölu- og afgreiðslufólk flugfé-
lagsins um allan heim, svo og
raunar alla aðra, sem ekki telj-
ast til flugliðs. Starfsemi SAS
á þessu sviði hófst veturinn
1962—1963 og var fyrstu árin
bæði í Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi, þar sem aðalskrif-
stofur SAS eru. Starfsemin kom
í góðar þarfir frá upphafi og
jókst því stig af stigi. Nú fer
þessi þjálfun mest öil fram í
skólanum í Kaupmannahöfn, og
sitja þar á námskeiðum, eina
eða tvær vikur í senn, alls um
1500 nemendur á hverjum
vetri.
FULLKOMINN AÐBÚNAÐUR
í skólanum eru nú 8 skóla-
stofur, auk sjónvarpsupptöku-
herbergis, þar sem verklegar
æfingar fara fram. Fram að
þessu hefur kennslan verið að
mestu í fyrirlestrarformi, en nú
hefur henni verið breytt á þá
lund, að hver og einn nemandi
geti átt kost á sem nánastri til-
sögn. Hefur tilhögun kennsl-
unnar þannig verið löguð að
því, sem reynzlan hefur bent
á að heppilegast væri, og voru
nemendur hafðir með í ráðum,
þegar ákveðið var að breyta
kennslunni.
Nemandi, sem í fyrsta sinn
sezt í skólann, verður áður að
66
FV 9 1971