Frjáls verslun - 01.09.1971, Blaðsíða 83
UIVH HEIIVIA OG GEIIUA
Það var og. . .
Síminn hringdi og
truflaði tvo ákafa elsk-
endur. Konan svaraði.
„Hver var það“,
spurði maðurinn, þeg-
ar hún hafði lagt tólið
á aftur.
„Það var maðurinn
minn. Hann sagðist
verða seinn fyrir,
vegna þess að hann
væri að spila bridge
heima hjá þér!“
Tímanna tákn?
Vanfær kona spurði
lækninn. hvort maður-
inn hennar mætti vera
viðstaddur barnsfæð-
inguna.
„Já, vissulega. Og
það er skoðun mín að
faðirinn eigi að vera
viðstaddur.“
„Faðirinn? En hon-
um og manninum mín-
um kemur engan veg-
inn saman“, sagði þá
konan.
Gullkorn
O Hún er svo
heimsk, að jafnvel hin-
ar stúlkurnar á skrif-
stofunni taka eftir því.
© Heyrið þér
þjónn, þessir tveir
menn elta mig. Viljið
þér gera svo vel að
biðja þennan litla að
hætta því.
f a.urunum
Fullorðin kona og
sonur hennar, sem unn-
ið hafði um árabil í
öskunni keyptu smá-
býli, og áttu að borga
út 600 þúsund. Þegar
skrifa átti undir kaup-
samninginn, komu þau
akandi til lögfræðings-
ins með stóran þvotta-
bala, fullan upp að
börmum af peningum,
bæði smámynt og seðl-
um. Þegar búið var að
telja upp úr balanum,
reyndist upphæðin
ekki vera nema 530
þúsund krónur. Feðg-
inin litu hvort á ann-
að.
— Heyrðu Palli
minn, sagði konan, við
höfum ekki tekið rétt-
an bala með okkur!
GÓÐIR DRYKKIR
Að þessu sinni eru hér tvær uppskriftir
að drykkjum, sem boðnir eru á Hótel Esju,
en höfundurinn er Egill Thorlacius bar-
þjónn þar:
Esju Cooler. 6 sl. Grand Marnier, gulur.
Safi úr % sítrónu. 12 sl. ananassafi. Hrist-
ist vel. Hellið í hálfglas á fæti.
Angelica Martine. % Hvannarótarbrenni-
vín, % Martini Dry Vermouth. Hrærist.
Hellið í kokkteilglas og setjið rönd af sít-
rónuberki í.
Þarna er sá frægi Dani, Símon Spis, ferða-
málafrömuður og milljónamæringur með meiru.
Spis er einhver sérkennilegasti persónuleikinn i
Danmörku um þessar mundir, maður undir
miðjum aldri, en með stórbrotnar hugmyndir,
hreinskilinn með afbrigðum, og með stórkalla-
legt slegið skegg. Dönsku blöðin lifa m. a. á
Spis. og hafa vikulega eitthvað að segja um
hann eða eftir honuum.
En. . . við höfum næstum gleymt því. að
Spis er ekki einsamall á myndinni. Sjá. . .
„Eg hef alltaf haft mikla unun af samskiptum
mínum við konur“, sagði Spis. „Mér er sama
hvað hver segir, ég rek viðskipti mín við kven-
þjóðina eins og mér sýnist. Það er gaman, þótt
þetta verði erfiðara með aldrinum!“
Eg er sá heppni,. .. sem fœr einkaritara valinn
af eiginkonunni!
FV 9 1971
81