Frjáls verslun - 01.12.1973, Blaðsíða 17
i siutiu máli
§ Tckjuöfliiii ríkisins
Nefnd hefur nýveriö skilaö skýrslu
um tekjuöflun ríkisins. Er skýrslunni
„ætlaö að vera eins konar umræöu-
grundvöllur viö mótun meginstefnu í
skattamálum“. Nefndin leggur m. a.
til, aö tekjuskatturinn veröi brúttó-
skattur, og að skattar á nýjum ben-
zínbílum verði lækkaöir, en benzín-
gjald hækkað á móti. Sömuleiðis verði
álagningarprósenta sú sama á öllum
tegundum áfengis. Mörg skemmtileg
dæmi eru um mismunun í skattalög-
unum, en þegar kemur aö saman-
burði milli hlutafélaga og samvinnu-
félaga, telur nefndin að rétt sé „að
miða við þær aröskiptareglur, sem fé-
lagsformunum hafa verið ákveðnar í
þeim lögum, sem um þau gilda“.
• Stjórnaraiifkiöðn-
flokkar viljja áckjjii-
skaftslœkkim
Alþýðuflokkurinn hefur lagt fram
þingsályktunartilögu og Sjálfstæöis-
flokkurinn hefur lagt fram frum-
varp á Alþingi um breytingu á tekju-
skatti í þá átt, að hann verði lækk-
aður, þótt með nokkuö ólíkum hætti
sé. Þá er vitað, að ríkisstjórnin hyggst
verzla við launþegasamtökin með
lækkun tekjuskatts og hækkun sölu-
skatts, sem ekki kæmi fram í kaup-
greiðsluvísitölu.
• Öryggi á sjjó
í fréttum frá Alþjóða vinnumála-
stofnuninni segir, aö í rannsókn, sem
gerð var í Frakklandi, hafi komiö í
ljós, að 87% allra sjóslysa eða óhappa
á sjó eigi sér stað að næturlagi. Þar
af verður helmingur, þegar fiskiskip
eru á heimleið úr veiðiferð, fjórðung-
ur á útleið og fjóröungur, eftir að
komið er á miðin. Er þreyta ástæöa
hinna mörgu slysa á heimleið?
f Samkcppni
samsláitiir lianka
Sænska ríkisstjórnin hefur ákveöiö
að slá saman Kreditbanken og Post-
banken. XJtkoman verður stærsti við-
skiptabanki Svíþjóðar. Stjórnarand-
staðan greiddi atkvæði á móti sam-
einingunni. Hinn nýi banki mun m. a.
hafa opið á póstafgreiðslum á laug-
ardögum. Hvort aörir viðskiptabankar
opna aftur á laugardögum eða semja
viö bankann um afgreiöslu á þeim
dögum gegn þóknun er óvitað mál.
En fátt er svo með öllu illt, að ekki
boði nokkuð gott.
• \orðnr- \oiTgnr
og orkiiskorfuriiin
Norður-Noregur er viðkvæmt svæöi
í NATO. Norðmenn kaupa þegar
nokkra raforku frá Rússum, en olíu-
skorturinn veldur því, að talað er um
að leita eftir frekari kaupum frá þeim.
í undirbúningi er einnig frumáætlun
um vatnsaflsstöð á viðkvæmum stað
frá náttúruverndarsjónarmiði. Kjarn-
orkuver er ekki talið koma til greina
á þessum slóðum.
Láðvík varft að
hcyjíjja sig
Málefni Fiskvinnuskólans hafa vak-
ið athygli að undanförnu. Greinilegt
er, að sjávarútvegsráðuneytiö og Fisk-
mat ríkisins ætluðu sér að halda
áfram meö matsnámskeiö, eins og
Fiskvinnsluskólinn hefði aldrei verið
settur á laggirnar. Málinu lyktaði þó
með því, aö sjávarútvegsráðherra varð
að lýsa því yfir, að öll matsnámskeiö
í fiskiðnaöi yröu framvegis á vegum
Fiskvinnsluskólans.
FV 12 1973
9