Frjáls verslun - 01.12.1973, Side 26
Verkamenn að störfum í einni af verksmiðjum Mafatlal-sam-
steypunnar, en hún hefur um 38 þúsund starfsmenn á sínum
snærum.
hefur haldizt síðan, enda hafa
þeir allir sömu litlu skrifstof-
una í aðalstöðvunum í Bombay
og búa í sama húsinu. Þeir
hlusta á símtöl hvors annars,
skiptast á upplýsingum, rífast
og ræða saman í bróðerni. Það
er sagt, að þeir líti allir út
sem smákaupmenn, sem eru að
reyna að komast yfir auð og
frama, en all ekki eins og
stórgróðamenn.
Framkvæmdastjórnin kemur
saman til fundar viku- eða
mánaðarlega, eftir þörfum, en
hún skiptir sér ekki af dag-
legum rekstri samsteypunnar,
heldur tekur hún ákvarðanir
um stefnu heildarframkvæmda
og fjármálastefnuna hverju
sinni.
ARVIND SKIPTIR SÉR
AF FJÁRMÁLUM OG
MANNAHALDI
Stjórnarformaðurinn fylgist
vel með ráðningu manna í á-
byrgðarstöður og öllum fjár-
málum stórfyrirtækisins, en
öðrum hliðum stjórnunarinnar
fylgist hann með í gegnum
sérstakar þjónustu- eða rekstr-
arnefndir. Þá er hann á kafi
í kynningarstarfsemi fyrir-
tækisins út á við, vegna þess
að hann segir, að í Indlandi
eigi sér stað mjög ör þróun
og miklar breytingar á stjórn-
málasviðinu, og þess vegna sé
nauðsynlegt að kynna starf-
semina vandlega fyrir stjórn-
völdum, stjórnmálamönnum og
almenningi. Hann segir, að
því miður hafi einkaframtakið
ekki nógu gott álit á sér með-
al almennings þar í landi.
GFR4 FÉ TTL SKÓLA OG
GÓDGERÐARSTARFSEMI
Fjölskyldan hefur sett fjórð-
ung eigna sinna í sérstakan
sjóð, sem síðan úthlutar fjár-
munum til skóla og sjúkra-
húsa. Mafatlal hefur skipt sér
mikið af góðgerðarmálum frá
tímum hungursneyðarinnar í
Bíhar árið 1967. „Við komumst
að raun um, að það þýðir ekk-
ert að gefa peninga til hjálpar-
starfs hins opinbera, þeim er
bara eytt í vitleysu, svo við
tókum sjálfir þátt í þessu
starfi“, segir Mafatlal. Nú orð-
ið dvelur hann lítið í Bombay,
heldur ferðast um og tekur
þátt í hjálparstarfinu víðsveg-
ar í Indlandi, þar sem ástand-
ið er slæmt.
TRÚUÐ FJÖLSKYLDA
OG SAMHELDIN
Mafatlal, eða raunar öll fjöl-
skyldan, er mjög trúuð að sið
Hindúatrúarmanna. í húsi
þeirra er sérstakt bænaher-
bergi, þangað sem fjölskyldan
kemur að bæn, saman eða í
sitt hvoru lagi. Mafatlal ligg-
ur á bæn í klukkustund á
hverjum degi, en synir hans
í 10 mínútur og litlu barna-
börnin láta ekki sitt eftir
liggja. „Ég finn lausn á á-
kvörðunum mínum við bæna-
borðdð. Þegar ég stend upp, þá
er svarið komið. Ég finn lausn
vandans“, segir stjórnarfor-
maðurinn. Hann segir, að það
þýði ekkert að ætla að „flytja
inn vestrænar framkvæmdaað-
ferðir í heildsölu“, vegna þess
að Indverjar séu tilfinningarík
þjóð og eina leiðin sé að
byggja upp samvinnu, sem er
í grundvallaratriðum indversk.
Þótt Mafatlal hafi trú á tölv-
um og nýtízku stjórnunarað-
ferðum, þá trúir hann einnig
á sögu Indlands, menningu og
fornar leiðir.
18
FV 12 1973