Frjáls verslun - 01.12.1973, Síða 37
Grcinar og uiðlöl
Staðgreiðsla skatta
Eftir dr. Guðmund IVIagnússon, prófessor
Umræður hafa átt sér stað
um það öðru hvoru hér á landi,
hvort ekki væri tímabært að
taka upp staðgreiðslukerfi
skatta, þ. e. greiðslu skatta um
leið og teknanna er aflað. Síð-
ast mögnuðust umræður um
þetta mál, þegar fjallað var
um „tómu umslögin“ í borgar-
stjórn. Staðreyndin er sú, að
skoðanir eru mjög skiptar með-
al embættismanna hérlendis
um, hvort hentgugt sé að
hverfa til staðgreiðslukerfis
skatta.
f því, sem hér fer á eftir
verður lýst helztu einkennum
staðgreiðslukerfis og reynt að
meta kosti þess og galla.
NEFNDARÁLIT 1970
Þingskipuð nefnd um stað-
greiðslu opinberra gjalda skil-
aði áliti í janúar 1970. Er þar
að finna almennt yfirlit um
staðgreiðslukerfi, áhrif þess og
hugsanlega framkvæmd. Mun
talsvert af því, sem hér fer á
eftir verða sótt í þá skýrslu.
Hins vegar er rétt að geta þess,
að nánast allir nefndarmenn
smeygðu sér undan því að
taka afdráttarlausa afstöðu
með eða móti staðgreiðslu op-
inberra gjalda.
HELZTU EINKENNI
STAÐGREIÐSLUKERFIS
Eins og nú háttar, á álagn-
ing og innheimta opinberra
gjalda sér stað árið eftir að
tekna er aflað. Reyndar er
hluti skattgreiðslunnar hjá ein-
staklingum ákveðinn fyrir-
fram, þ. e. greiða skal 60% af
gjöldum næstliðins árs fyrir
mitt ár. En vegna þess, hve
tekjur hækka ört, þýðir þetta
hjá allflestum, að aðalskatt-
þunginn lendir á seinni hluta
ársins. Sömuleiðis sveiflast
tekjur hér á landi meira en
gerist í nágrannalöndunum,
þannig að ekkert kann að vera
að innheimta ári seinna. Á
hinn bóginn verða skattgreiðsl-
ur óverulegur hluti teknanna,
þegar uppgrip eru. Sömuleiðis
næst ekki til þeirra, sem eru
að byrja á vinnumarkaðnum
fyrr en ári seinna og erfitt
getur verið að innheimta skatt,
þegar búferlaflutningar eiga
sér stað, skilnaður, gjaldþrot
o. s. frv.
í skattgreiðslukerfi er að því
stefnt, að skattar séu lagðir á
og innheimtir jafnóðum og
tekjurnar myndast.
Á Norðurlöndum er skattur-
inn ákvarðaður á grundvelli
áætlunar um tekjur ársins. Að
því leyti má tala um fyrir-
framgreiðslu og segja, að nálg-
ast mætti staðgreiðslukerfi
annarra Norðurlanda með
hækkun fyrirframgreiðslu gild-
andi kerfis. Rétt er þó að
benda á, að með því móti næst
ekki til ýmissa hópa, eins og
þeirra, sem eru að byrja á
vinnumarkaðnum, auk þess
sem fyrirtæki greiða hér ekki
samkvæmt áætlun, en í Sví-
þjóð og Bandaríkjunum ná
kerfin einnig til fyrirtækja.
Ekki þarf heldur að vera víst,
að Norðurlandakerfið sé það
hentugasta og hagkvæmasta.
Ýmislegt bendir reyndar til,
að það sé of þunglamalegt í
vöfum, og að þýzka kerfið
væri betra, en þar fer álagn-
ingin fram jafnóðum eftir til-
teknum reglum.
FRAMKVÆMD
Það fer eftir aðstæðum og
ákvörðun í hverju landi til
hvaða aðilja kerfið nær og
hvaða skattar eru innheimtir
samkvæmt því. Sömuleiðis
þarf að sjálfsögðu að ákveða,
hvernig álagning og innheimta
á að fara fram.
Tillögur nefndarinnar voru í
aðalatriðum þessar:
1. Að kerfið skyldi ná bæði til
opinberra gjalda launþega
og opinberra gjalda af sjálf-
stæðri starfsemi, hvort sem
hún er stunduð á vegum
einstaklinga, félaga, stofn-
ana eða sjóða.
2. Launþegar skyldu greiða
samkvæmt flatri prósentu á
launin, þ. e. við hverja út-
borgun skyldi haldið eftir
ákveðnum hundraðshluta
launanna.
Gjöld af atvinnurekstri
skyldi hins vegar inna af
hendi samkvæmt áætlun eða
nánari ákvörðun skattyfir-
valda.
3. Skattgreiðslur innan ársins
yrðu bráðabirgðagreiðslur.
Að skattári loknu færi fram
álagning eftir framtölum
skattþegna og mismunurinn
gerður upp eftir tilteknum
reglum.
EINFÖLDUN NAUÐSYNLEG
Hverjum manni er ljóst, að
það mundi auðvelda mjög
staðgreiðslukerfi í framkvæmd,
sem og gildandi kerfi, ef skatt-
kerfið væri einfaldað. Eins og
er, er ýmiss konar frádráttur
heimilaður frá brúttótekjum,
áður en tekjuskattur er reikn-
aður. Má þar nefna persónu-
frádrátt, 50% af launatekjum
konu, námsfrádrátt, vaxta-
gjöld, sjómannafrádrátt,
skyldusparnað o. fl. Þegar allt
kemur til alls, reiknast ekki
nema um þriðjungur brúttó-
tekna einstaklinga sem skatt-
gjaldstekjur.
Hvað, sem segja má annars
um skattbreytingarnar 1972,
þá fól niðurfelling nefskatta
og upptaka brúttóútsvars í sér
mikla einföldun, sem kæmi til
góða í staðgreiðslukerfi. Kerf-
ið yrði því einfaldara í fram-
kvæmd, sem unnt er að nálg-
ast meira brúttóskatt og eina
skattprósentu, en nú eru í gildi
þrjú skattþrep, auk allra frá-
dráttarliða.
FV 12 1973
29