Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1973, Síða 47

Frjáls verslun - 01.12.1973, Síða 47
úr fyrirtækjafjöldanum, sem hefur færri ársmenn er all- miklu minna, eða á milli 10 og 20%. Úrtakið fyrir árið 1972 er sennilega 100 til 150 fyrir- tækjum stærra. VERZLUNARGREINAR UM 12% í HEILDARATVINNUNNI Jón Sigurðsson sagði, að at- hygli hefði vakið, hve stöðugt hlutfall verzlunin hefði átt í heildaratvinnu landsmanna síð- asta áratug. Sama hefði verið um heildverzlunina. Verzlunar- greinarnar eru alls í kringum 12%, en heildverzlunargrein- arnar um 4%, en þá er átt við verzlunargreinarnar allar, bílaverzlun, byggingaverzlun og almenna heildverzlun. Erf- iðleikaárin 1967 til 1969 skera sig þó úr, þar sem þá verður samdráttur, en eftir að þeim linnir tekur verzlunaratvinnan að aukast á ný. Þróun verzlun- ar fram til ársins 1960, er hún náði 12%, er mjög ör vöxtur. Hlutdeild verzlunarinnar í at- vinnunni er 6 til 7% árið 1940, en árið 1950 er hún orðin 8 til 9%, en er komin í 12% eins og áður sagði 1960. Síðan hefur hlutur hennar haldizt nokkuð stöðugur, þótt hag- sveiflur virðist hafa svolítil á- hrif á aðdráttarafl þessarar greinar, sem engum ætti að koma á óvart. Þróunin fram til 1960 speglar þá breytingu, sem fylgir batnandi lífskjör- um, þegar sótzt er eftir fjöl- breyttara úrvali varnings og þjónustu. Þá kemur í ljós sam- kvæmt athugunum að um 40% heildsölufyrirtækjanna eru rekin af einstaklingum fyrir eigin reikning, en 60% í fé- lagsformi, en þar eru meðtalin bæði hlutafélög, samvinnufélög og sameignarfélög. 23% VELTUAUKNIN G 1971-72 Þá sagði Jón Sigurðsson, að á árinu 1971 virtist hreinn hagnaður félaga og hreinar rekstrartekjur einstaklinga, þ. e. a. s. bæði vegna þeirrar eigin vinnu og framlags fyrir skatta áður en á þetta eru lagðir tekju- og eignaskattar, hafa numið 309 milljónum króna eða 3,7% af heildar- veltu, umboðslaunum og öðr- um tekjum án söluskatts. Það sem fyrirtækið hefur hins veg- ar í heild, brúttóhagnaður í hlutfalli við vörunotkun eða útkoman úr álagningu og rýrn- un, er 16.4% á árinu 1971, en þá var heildarveltan 8,3 millj- arðar í heildverzluninni. Bein- ir skattar námu samtals tæp- lega 1% af þessum heildartekj- um, þannig að hreinn hagnað- ur eftir skatta er áætlaður 2,8%. í þessum hreina hagn- aði eru meðtaldar tekjur eig- enda einstaklingsfyrirtækja, en þeir vega ekki mjög þungt í þessum dæmum vegna þess, hve félögin eru þarna yfir- gnæfandi í rekstrinum. Milli áranna 1971 og 1972 virðist hafa orðið 23% veltuaukning. Umboðstekjurnar og aðrar tekjur jukust hins vegar miklu meira eða um tæplega 40%, þannig að heildartekjur grein- arinnar jukust um 24% og urðu rúmlega 10,3 milljarðar samkvæmt áætlun hagrann- sóknardeildarinnar 1973. Brúttóhagnaðurinn hækkaði meira eða um 29%, þar sem hlutfallsleg álagning, útkoman úr álagningu og rýrnun, hækk- aði nokkuð eða úr 16,4 í 17,2%. Gjaldahækkunin varð hins vegar mun meiri en hækkun brúttóhagnaðar og ber þar hæst hækkun launakostn- aðar, sem nam tæplega 44% milli áranna. í heild verður niðurstaðan sú, að hlutfall heildartekna af tekjum fyrir skatt hafi lækað 1972 úr 3,7 í 3,3%, þannig að eftir skatt verður hagnaðarhlutfallslækk- unin úr 2,8 í 2,1%. HAGPRENT H.F. auglýsir: ÍSLENZK • Sjóðbækur í tvíriti. FYRIRTÆKI • Sjóðbækur í einriti með bankareikningi. Stærsta og • Vörutalningabækur í tvíriti. • Frumbækur, tvær stærðir, í tví- og þríriti. útbreiddasta • Grínkort. fyrirtækjaskrá • Afmæliskort. iandsins • Alls konar prentun í einum og fleiri litum. Hagprent hf., FRJÁLST FRAMTAK H.F. Laugavegi 178 Brautarholti 26, Reykjavík, sími 21650 Símar 82300-82302 FV 12 1973 39

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.