Frjáls verslun - 01.12.1973, Qupperneq 51
un, en sérgreinafélögin gera
normtölur og kannanir fyrir
sína grein í samráði við stofn-
unina.
Finnska stórkaupmannafé-
lagið safnar upplýsingum í lok
hvers árs úr reikningum fé-
laga um afkomu, kostnaðar-
skiptingu, fjármagnsuppbygg-
ingu o. fl. Einnig safnar það
inn mánaðarlega upplýsingum
um sölu félagsmanna og hvern-
ig hún skiptist niður á hinar
ýmsu greinar. Á grundvelli
þessara upplýsinga sendir
skrifstofan út mánaðarlega
skýrslu um sölu eftir greinum,
og hverjar breytingar hafi orð-
ið á henni, og árlega er gefin
út skýrsla um stöðu heild-
verzlunarinnar, þar sem gefin
er heildarmynd af sölunni, auk
hinna ýmsu upplýsinga úr
reikningum félaganna. Náin
samvinna er höfð við hagstof-
una í Finnlandi.
KÖNNUN ERFIÐ
HÉRLENDIS
Hér á fslandi hafa verið til
heldur litlar upplýsingar um
verzlunina í landinu, þótt á
síðustu árum hafi verið gerðar
nokkrar athuganir, sem þó eru
mjög erfiðar, m. a. vegna þess
að bókhald er víða frumstætt
og engin bókhaldsstaðall hefur
verið fyrir hendi. Félag ís-
lenzkra stórkaupmanna lét í
haust fara fram athugun á bók-
haldi fyrirtækja og kom þá í
ljós, að 30% fyrirtækjanna eru
með handfært bókhald. Mjög
erfitt er að fá menn til þess
að taka þátt í slíkum athugun-
um hér á landi, en Jónas Þór
sagði, að vonandi yrði breyting
á því í náinni framtíð. Mögu-
leika kvað hann t. d. vera fyrir
því, að félagið léti fara fram
könnun á veltu fyrirtækja og
stærðardreifingu með því að
nota söluskattsgögn. Sænska
stórkaupmannafélagið lét gera
slíka könnun á 841 fyrirtæki
og kom í ljós, að 457 fyrirtæki
voru með veltu undir 10
milljónum króna og aðeins
með 5,7% af heildarveltunni.
26 stærstu fyrirtækin, sem
voru með 200 milljón króna
veltu hvert, voru með 51,5%
af heildarveltunni. Með saman-
burði milli ára er unnt að sjá
þróunina í verzluninni.
Jónas Þór Steinarsson sagð-
ist álíta, að helzt ætti að safna
hér upplýsingum um afkomu
og fjárhagsuppbyggingu fyrir-
tækja og i því sambandi taldi
hann hugsanlegt, að upplýs-
ingaöflun og úrvinnsla gagna
færi fram á vegum Félags ís-
lenzkra stórkaupmanna, sér-
stakrar rannsóknarstofnunar,
Hagstofunnar, eða annarra op-
inberra aðila. Mætti jafnvel
hafa sama háttinn á og er í
Finnlandi.
Ræðumaður taldi einnig
æskilegt, að unnt yrði að safna
mánaðarlega eða a. m. k. árs-
fjórðungslega upplýsingum um
sölu fyrirtækja og þá eftir
greinum. f því sambandi mætti
nota upplýsingar um söluskatt.
Sagði Jónas Þór: „Ekki skiptir
öllu máli í dag, að upplýsing-
arnar séu alveg nýjar, því að
allar upplýsingar umfram það
sem við nú höfum eru mikil-
vægar, jafnvel þó að þær séu
nokkurra mánaða gamlar, þeg-
ar þær eru birtar.“
HÁR
REKSTURSKOSTNAÐUR
Þá skýrði Jónas Þór Stein-
arsson frá könnun, sem F.Í.S.
lét gera í haust á högum heild-
verzlunarinnar. 30% félags-
manna svöruðu. Var m. a.
spurt um reksturskostnað,
heildarveltu, svo og hve stór
hluti reksturskostnaðar væru
laun og launatengd gjöld. í
ljós hefur komið, að resturs-
kostnaður er allt frá 10% af
veltu og upp í 25%, en laun
og launatengd gjöld eru frá
um 40% í yfir 60% af rekst-
urskostnaði. Ef matvöruverzl-
unin er tekin sérstaklega, þá
var reksturskostnaðurinn 1971
14,6%af veltu og launkostnað-
ur 43,9% af reksturskostnaði.
Sambærilegar tölur frá Finn-
landi sama ár er að meðal-
reksturskostnaður var 6,5% af
veltu og launkostnaður um
45% af reksturskostnaðinum. í
vefnaðarvöru hér á landi var
reksturskostnaðurinn 12,3 % af
veltu og launakostnaðurinn
40,1% af reksturskostnaðinum.
í Finnlandi var reksturskostn-
aðurinn rúm 16% og launin
47 % af reksturskostnaðinum.
Samkvæmt þessu virðast ís-
lendingar vera talsvert á eftir
í þessum efnum.
í könnunni var jafnframt
spui't um lengd víxla. Hún
reyndist vera 45 til 90 daga,
en eins og kunnugt er er það
aðalregla bankanna að kaupa
ekki víxla, sem eru til lengri
tíma en 45 daga. Því virðist
óeðlilegt að menn séu með
víxla allt að 90 dögum, sér-
staklega þegar fæstir reikna á
þá vexti.
Okkar vinsælu raðhillusett eru nú
fáanleg aftur í tekk, beyki og
palesander.
•
Þeir, sem eiga hjá okkur pantanir,
vinsamlegast vitji þeirra.
Gamla kompanÍLð hf.,
SlÐUMÚLA 33, SlMI 36500
FV 12 1973
43