Frjáls verslun - 01.11.1975, Blaðsíða 70
SFrá
ritstjéni
Ráðstefnur á Islandi
Ekki fer á milli mála aö á íslandi hafa hin
síðustu ár skapazt ákjósanlegustu skilyröi
til mannfunda meö alþjóðlegri þátttöku.
Samgöngur við landið eru í ágætu horfi,
tíöar ferðir bæði austur og vestur um hafið,
og önnur tengsl við útlönd sæmilega örugg
eins og símasamband. Af þessum sökum
setja menn það ekki fyrir sig að ferðast til
íslands og ráða þar ráðum sínum þó að slíkt
hafi tæpast hvarflað aö mönnum fyrir svo
sem tveimur áratugum sakir einangrunar
landsins.
Allur aðbúnaður fyrir gesti okkar frá út-
löndum hefur batnað stórum og með hliö-
sjón af fundum og ráðstefnum sérstaklega,
hefur áherzla verið lögð á góð salarkynni í
hótelum og starfslið þjálfað til aö mæta
ströngum kröfum, sem gerðar eru til ráð-
stefnuhalds á alþjóðamælikvarða.
Því er ekki að leyna, að stórvel hefur tek-
izt til um framkvæmd margra alþjóölegra
móta og funda á íslandi. Erlendir þátttak-
endur í þessum mótum lofa almennt fram-
kvæmd þeirra og móttökur allar auk þess
sem íslenzkt landslag svíkur engan.
Ekki skal dómur lagður á, hvort of mikill-
ar bjartsýni gætir hjá sumum frumkvöðlum
íslenzkra ferðamála, sem hafa sumir hverjir
talið ráðstefnuhald líklegt til að leysa allan
árstíðabundinn vanda fyrirtækja í ferða-
mennskunni. Hins vegar ber að vara viö
allri tröllatrú á þessum þætti ferðamála
því að landfræðileg skilyrði eins og þau
verða verst hér á landi munu tvímælalaust
þoka íslandi aftur fyrir flest lönd í N.-Evr-
ópu og Ameríku á valkostalistum aöstand-
enda umfangsmestu fjölþjóðlegra funda og
ráðstefna að vetrarlagi. Ráðstefnuhald hér-
lendis mun í ríkum mæli ráðast af mögu-
leikum til aö komast leiðar sinnar innan-
lands og njóta sæmilegs veðurs.
Mörg hinna fjölmennari þinga koma líka
aðeins til greina að sumarlagi vegna þess aö
þátttakendur verða að verja hluta af hefð-
bundnum orlofstíma sínum til aö komast.
En fundir og ráðstefnur eru ólíkar að
stærð og gerð. Því fer víðs fjarri að allir
þurfi að bíða eftir sumarfríinu sínu til aö
fara á fund á íslandi. Alla daga er um heim
allan verið að þinga af margvíslegu tilefni,
sumt af nauðsyn, sem kallað hefur á aukna
fjölbreytni í staöavali. Þetta eru oft á tíðum
tiltölulega fámennir fundir stofnana og fyr-
irtækja. Á því sviði er óplægður akur fyrir
Islendinga og á þann markað hlýtur athygli
íslenzkra ferðamálafyrirtækja að beinast.
Þar eru óefað mikil tækifæri til að nýta
betur samgöngutæki og gististaði en nú er
einkum vor og haust.
I þessu sambandi skal áherzla lögð á það
veigamikla gildi sem ferðamál hafa fyrir
gjaldeyrisstöðu þjóðarinnar og afkomu fjöl-
mennra starfsstétta. Þetta eru staðreyndir
sem vilja gleymast, þegar ráðamenn fjalla
um ferðamálastarfsemi, og þá stundum í
kæruleysistón eins og um eitthvert tóm-
stundagaman nokkurra sérvitringa sé að
ræða.
Þvert á móti eru hér miklir hagsmunir í
húfi, er snerta þjóðarheildina. Þess vegna
skulu forráðamenn íslenzkra stofnana og
fyrirtækja hvattir til að nota tengsl sín við
samstarfsaðila erlendis í því augnamiði að
fá þá til að halda fundi sína á íslandi.
Fundir stjórnarerindreka eða forstöðu-
manna fjölþjóölegra fyrirtækja, verölauna-
ferðir fyrir duglega sölumenn, fámennir eða
fjölmennir fundir fulltrúa á vegum alþjóöa-
stofnana. Allt eru þetta dæmi um fólk í
mismunandi störfum, sem er á fleygiferö
milli funda um heim allan. Þeir eru ótaldir
forystumenn hjá íslenzkum stofnunum og
fyrirtækjum, sem geta haft áhrif á hvar
þetta fólk hittist næst. Af hverju ekki að
póstleggja nokkra kynningarbæklinga frá
flugfélögunum og hótelum og senda við-
skiptaaðilum erlendis?
Af hverju ekki ísland næst?
66
FV 11 1975