Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 22
Almenningur í Arabalöndum þarfnast annarrar og mciri tækni en nýrra hernaðartækja. Ráðamcnn sýna málinu aukinn skilning. hafa það eitt að markmiði, að nota olíugróðann til að byggja upp fjölbreyttan iðnað og at- hafnalif áður en olíulindirnar miklu þorna upp. Jarðvegur- inn fyrir viðskipti er erlendu kaupsýslumönnunum mjög hag- stæður, því að þessi ríki verða að flytja inn nær allar vörur, sem þau þurfa á að halda. Það sem erlendu sölumenn- irnir sækjast mest eftir er að ná samningum um hönnun og smíði stórra atvininufyrirtækja, sem eru að breyta litlum fiski og perluveiðiþorpum í nýtízku borgir. Hins vegar má segja að markaðsmöguleikarnir á þessu svæði séu nær óþrjótandi og einkum er mikill áhugi fyrir vestrænum lúxusvarningi. Á börunum í hótelunum í þeim löndum, sem leyfa áfeng- isneyslu má hitta fyrir brezka verkfræðinga og arkitekta, sem skiptast á upplýsingum um við- skipti við sölumenn frá banda- rískum tölvufyrirtækjum og svissneska skartgripasala, sem spjalla við umboðsmemn spánskra kabaretta. ENGINN DANS Á RÓSUM Þessar viðskiptaferðir eru langt frá því að vera dans á rósum. Arabískir embættis- menn eru í dag ákaflega var- kárir, því að þeir telja sig hafa orðið illa úti í viðskiptum við erlenda sölumenn á fyrstu ár- um olíuævintýrisins. í samning- um verður erlendi kaupsýslu- maðurinn að sýna mikla þolin- mæði og aðgæslu og umfram allt forðast að byrja á fyrsta fundi að ræða um samnings- orðalag, því að arabísku em- bættismennirnir leggja mikið upp úr trausti og takist erlenda sölumanninum að vinna sér slíkt traust, fylgir samnings- gerðin nær sjálfkrafa. Bandarískir kaupsýslumenn hafa komist á snoðir um að þeir verða að bæla niður tilhneig- ingu sína til að vera frjálslegir og ganga beint til verks, því það finmst Aröbunum mikil ó- kurteisi. Arabarnir eru ákaf- lega stoltir menn og slyngir og það er ekki auðvelt að villa um fyrir þeim og þeir eiga bágt með að fyrirgefa það sem þeir telja persónulega móðgun. VARNAÐARORÐ Reyndir menn í viðskiptum í Arabalöndunum telja upp eftir- farandi atriði, sem forðast skuli ef von á að vera um að ná samningum, spjátrungshátt, látalæti, hörku í sölumennsku, fals, hroka, ruddaskap og sleikjuhátt. Sagt er að ýmsir sölumenn verði hvumsa er þeir heyri þennan lista og spyrji hvernig í ósköpunum þeir eigi að koma málum sínum á framfæri, en svarið er, að þeir skuli reyna allar aðrar leiðir en þessar og þá sé þeim vel borgið. Þetta eru ekki einu fótakefl- in fyrir erlendu sölumönnunum því að jafnvel þótt þeir telji sig hafa fundið leiðina í pyngju Arabans er ekki auðvelt að komast á staðinn né fá viðtal við viðkomandi embættismann. Flest hótelin í borgunum við Persaflóa eru bókuð margar vikur fram í timann og sama er um flugferðir hjá flugfélag- inu Gulf Air. Hefur margur kaupsýslumaðurir.n farið flatt á því er viðskiptaferð, sem skipulögð hafði verið í smáatr- iðum varð að engu vegna seink- unar á flugferð og margar sög- ur eru til af því er vestrænir viðskiptajöfrar hafa staðið í hótelmóttökunum og grátbænt fólk um rúm til að sofa í. TAKA DAGINN SNEMMA Takist þeim að koma sér fyrir er að byrja að laga sig að viðskiptavenjunum á þessum slóðum. Fyrsta sem menn þurfa að gera sér grein fyrir er að skipuleggja verður alla fundi fyrir hádegi, því að vinnudagurinn á þessum slóð- um er frá kl. 7 á morgnana til kl. 13, en þá fara allir í langa hvíld. Óráðlegt er að skipu- leggja marga fundi á sama deg- inum, því að arabískir embætt- ismenn eru alltaf í tímahraki, en reyna samt að halda sér við þá kurteisu hefð á þessum slóð- um að vera aðgengilegir, en það þýðir að kaupsýslumaður- inn verður að sætta sig við að sitja í biðstofu og sötra arab- ískt kaffi löngu eftir að stund viðtalstíma hans var liðin, unz um hægist hjá viðkomandi em- bættismanni. Oft er það að Arabarnir biðja hina erlendu gesti sína vinsamlegast að hitta sig yfir morgunverði í New York, París eða London til að halda viðræðum áfram. Þeir sem slíkt boð fá þurfa yfirleitt ekki að hafa áhyggjur af að ná ekki ^amningum. 22 FV 2 1976
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.