Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 54
Krummahólar 4 með 38 íbúð-
um og í Flúðaseli 2 erum við
núna með 18 íbúðir í byggingu.
Síðan fengum við úthlutað í
norðaustur-deild Breiðholts III
um síðustu áramót og þar
byggjum við um 30 íbúðir og
byrjum á því í haust.
Hátt í 200 aðilar hafa átt við-
skipti við okkur vegna ibúðar-
kaupa og við höfum ekki lent í
útistöðum við neinn þeirra enn-
þá. Ég hef ekki orðið var við
annað en að þeir hafi verið á-
nægðir og það er dálítið
skemmtilegt, að systkini og
vinir þessara kaupenda vilja fá
ibúðir hjá okkur líka. Margir,
sem einu sinni hafa keypt hjá
okkur, leita svo til okkar aftur
þegar þeir vilja stækka við sig.
Ungt fólk hefur mjög mikið
keypt af okkur. Vegna gagn-
rýni sem kom fram á hve mik-
ið væri byggt af litlum blokk-
aríbúðum, gerði ég fyrir þrem-
ur árum athugun á því, 'hvað
margir kaupenda þessara minni
íbúðagerða væri fólk um tví-
tugt. Það reyndist vera 80-85%.
Það er oft talað um stefnuleysi
þessa unga fólks og hvað það
sé staðlaust. Við höfum allt
aðra reynslu af því. Það er að-
dáunarvert, hvað þetta unga
fólk hefur staðið sig vel og yfir-
leitt standast allar greiðsluá-
ætlanir samkvæmt samningum
fullkomlega. Það eru frekar
þessir gömlu, sem ganga lengra
en getur talizt sanngjarnt og
leyfa sér ýmsa misjafna hluti.
F.V.: — Þú átt sæti í skipu-
lagsnefnd Reykjavíkurborgar.
Þeim hugmyndum hefur verið
hreyft, að byggingaraðilar ættu
nánara samstarf við skipulags-
hönnuði eða fengju jafnvel
sjálfir ákveðin svæði til endan-
legrar skipulagningar og út-
færslu. Telur þú, að svo muni
verða á næstunni?
M.J.: — Ég tel alveg tví-
mælalaust að byggingarmeist-
arar eigi að koma meira við
sögu skipulagsmála en nú er.
Reyndar fleiri en byggingarað-
ilarnir. Almenningur á að vera
virkur í þessu starfi.
Ég hef gagnrýnt skipulags-
mál borgarinnar á undanförn-
um árum. Nú er ég sjálfur í
skipulagsnefndinni og geri mér
betri grein fyrir þeim ýmsu
vandamálum, sem við er að
fást. En mér finnst útilokað, að
ein stétt, arkitektar, sitji að
öllu skipulagi. Af fimm mönn-
um, sem sæti eiga í skipulags-
nefndinni, eru þrír arkitektar.
Að starfsmönnum skipulagsins
meðtöldum eru það þó aldrei
færri en fimm til átta arkitekt-
ar, sem sitja fundi nefndarinn-
ar. Flestir, sem vinna að skipu-
lagi fyrir borgina, eru arkitekt-
ar.
Því miður verður það að ját-
ast að hjá þessum mönnum vill
einkaframtakið oft gleymast.
Margir þeirra eru uppfullir af
alls kyns sósíalískum hugmynd-
um — að hringla öllu saman,
skipa fólkinu saman, drepa nið-
ur einstaklingshyggjuna í ís-
lendingum, sem er ákaflega rík.
Þessu er ég á móti. Við eigum
fullt af góðu fólki, sem getur
unnið gott starf við skipulags-
vinnu. Hlutur byggingarmeist-
ara í skipulagi Reykjavíkur
þarf að stækka mikið.
Við byggingarmeistarar er-
um tilbúnir að taka að okkur
ákveðið hverfi og skipuleggja
það sjálfir. Ef verkefnið reyn-
ist of stórt fyrir einhvern einn
aðila þá munum við bræða
okkur saman. Við höfum áður
getað tekið upp samstarf
margra aðila, þegar aðstæðurn-
ar hafa krafizt þess.
Við höfum haldið fram um
árabil, að það sé ákveðin húsa-
gerð, sem sé hagstæðust í bygg-
ingu. Hún hefur alltaf verið
dregin út úr höndunum á okk-
ur. Þetta eru fjögurra hæða
blokkir án kjallara, lyftulausar.
Gjörnýting á húsi. Svona höf-
um við viljað byggja en ekki
fengið. Að vísu var þetta leyft
lítillega .í Árbæjarhverfinu en
siðan skipulagði framkvæmda-
nefnd byggingaráætlunar fyrir
sjálfa sig uppi í Breiðholti III
og byggði eingöngu fjögurra
hæða hús, með íbúðum á fyrstu
hæð og gjörnýtingu hússins. Þó
að við meistararnir værum að
gjamma um hagkvæmnina í
þessu var ekki tekið mark á
því. Vonandi verður nú hlustað
á okkur.
Austfirðingar.
Ferðalangar
*
a
Austurlandi
Gerum
við
hjólbarða.
Fjölbreyttasti
varahlutalager
a
Austurlandi.
BIFREIÐA-
ÞJÖNUSTAN
NESKAUPSTAÐ
(Eiríkur Ásmundsson),
STRANDGÖTU 54,
SÍMI 97-7447,
HEIMASÍMI 97-7317.
54
FV 2 1976