Frjáls verslun - 01.02.1976, Blaðsíða 16
Á skíðum við Húsavík. Aðstaðan í hótelinu er fyrsta flokks og
skíðabrekkur eru fyrir flesta hæfnisflokka. Tvær togvindur eru
á Húsavík.
það' að auka mjög á ánægju
þeirra sem staðinn sækja og
hafa vel troðnar brautir, auk
þess sem sú ráðstöfun dregur
stórlega úr slysahættu.
VAXANDI AÐSÓKN
Að lokum var ívar inntur
eftir aðsókn skíðafólks í Hlíðar-
fjall. Hann sagði að sér virtist
áhugi og aðsókn vaxa stöðugt.
Gilti það bæði um heimafólk
og gesti lengra aðkomna. Væri
því margt sem benti til þess að
hin bætta skíðaaðstaða í Blá-
fjöllum hefði á óbeinan hátt
orðið til þess að auka aðsókn-
ina í Hlíðarfjall. í Bláfjöllum
vaknar áhugi sunnlendinganna
fyrir skíðaiþróttinni og þegar
þeir eru búnir að tileinka sér
undirstöðuatriði hennar vex á-
hugi fyrir hærri brekkum og
hvað er þá eðlilegra en að halda
norður í land og spreyta sig á
brekkum Hlíðarfjallsins.
Húsavík
vaxandi
ferða-
miðstöð
Skíðabrekkurnar
við hötelveggina
Augu ferðamanna hafa í
auknum mæli beinst að Húsa-
vík á ’undanförnum árum, enda
hefur staðurinn og nágrennið
upp á margt að bjóða. Til þessa
hefur ferðamannastraumurinn
þangað fyrst og fremst verið
yfir sumartimann, en nú hafa
heimamenn stórbætt aðstöðuna
til þess að taka á móti gestum
yfir veturinn.
Hótel Húsavík er tilbúið til
að taka á móti gestum jafnt
að vetri sem sumri og ef Húsa-
vík er heimsótt að vetrarlagi
bíða skíðabrekkunw svo að
segja fyrir utan hótelvegginn.
Einar Olgeirsson, hótelstjóri
á Hótel Húsavík, sagði að i
brekkunum ofan við bæimn
væri búið að setja upp tvaer
skíðalyftur. Annars vegar er
um toglyftu að ræða en hins
vegar T-lyftu. Lyfturnar eru
staðsettar í skemmtilegu skiða-
landi, þar sem flestir hæfnis-
flokkar ættu að geta fundið
brekkur við sitt hæfi.
Einar sagði að í raun og veru
hefði það fyrst gerst í fyrra
vetur að farið var að auglýsa
Húsavík upp sem skíðastað.
Hefði verið lögð áhersla á að
vekja áhuga fjölskyldufólks á
staðnum og um páskana í fyrra
hefði aðsókn verið góð. Ástæð-
una fyrir því að sérstök áhersla
væri lögð á að laða fjölskyldu-
fólk til staðarins væri sú, hve
staðurinn væri rólegur, brekk-
urnar nálægar og örtröð í lyft-
ur lítil.
SÉRSTAKT KYNNINGAR-
VERÐ
— Á meðan við erum að
kynna staðinn bjóðum við upp
á sérstakt kynningarverð, sem
er lægra en aðrir skíðastaðir
bjóða upp á, sagði Einar. Dvöl-
in á hótelinu í 3 nætur ásamt
morgunverði og fargjöldum á
staðinn kosta aðeins 9.100 kr.
fyrir manninn og ef um börn er
að ræða þá leyfum við foreldr-
unum að taka með svefnpoka
fyrir þau, svo þau geti legið á
gólfinu í herbergi þeirra. Einn-
ig er möguleiki á að útvega
þeim aukadínur.
Einar sagði að til Húsavíkur
væri flogið fjórum sinnum í
viku, þ.e. á mánudögum, mið-
vikudögum, föstudögum og
laugardögum. Kvaðst hann
vera mjög ánægður með þann
áhuga, sem FÍ sýndi með því
að koma til móts við hótel á
skíðastöðum úti á landi og
bjóða ódýrar ferðir til þeirra
staða yfir skíðatímann.
FLÓÐLÝSTAR BREKKUR
Að lokum var Einar inntur
nánar eftir skíðalandinu við
Húsavík. Hann sagði að það
tæki 3 mínútur að ganga að
brekkunum frá hótelinu.
Brekkurnar væru flóðlýstar á
kvöldin og þar færi fram skíða-
kennsla fyrir þá sem þess óska.
Lyftugjöldum væri mjög stillt
i hóf í brekkunum og eins og
áður segir þá væru brekkurnar
fjölbreyttar og við flestra hæfi.
Einnig væri mögulegt fyrir þá
sem vilja að reyna eitthvað
nýtt, að leigja sér bílaleigubíl á
Húsavík og aka lengra til að
komast í nýjar brekkur eða
jafnvel upp á fjall í leit að
nýjum ævintýrum.
16
FV 2 1976