Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1976, Side 92

Frjáls verslun - 01.02.1976, Side 92
-----------------AUGLÝSING ------------ EVIINIRLDE þarfur, nauðsynlegur og skemmtilegur Samhliða auknum áhuga fólks á útiveru og gildi henn- ar hefur áhugi fólks á vél- sleíum margfaldast, sérstak- lega þar sem óvenju mikill snjór hefur verið í Reykjavík í vetur. Árið 1966 hóf Þór h.f. innflutning Evinrude vélsleða og hefur æ síðan verið í farar- broddi vélsleðaseljenda. Fyrstu árin var salan ekki mikil en óx frá ári til árs og hafa verið seldir 90-125 vél- sleðar á ári. í allt hefur Þór hf. selt hátt í 500 Evinrude snjósleða og i vetur er þegar búið að selja milli 50-60 sleða, en alls er reiknað með að selja um 100 sleða. Á öllu landinu munu nú alls vera til rúmlega 1000 vélsleðar. Vélsleðinn hefur sannarlega reynst þarfur þjónn bændum í snjóþungum héruðum, og gert þeim ferðalög og flutn- inga auðvelda, sem áður voru erfiðir, hættulegir og jafnvel útilokaðir, enda hafa bændur mest keypt af sleðum til þessa. En vélsleðinn hefur reynzt þarfur fleirum en bændum. Þannig er hann nú ómissandi tæki björgunarsveitum við leit að fólki, og hefur Þór hf. selt björgunarsveitum um allt land vélsleða. Þá hefur vélsleðinn reynzt hinn þarfasti við eftir- Ómissandi til björgunarstarfa. lit með rafmagns- og símalín- um, vegaeftirlit o. fl. íbúar þéttbýlis hafa bæst í stækkandi hóp vélsleðakaup- enda nú hin seinni ár, enda má segja að áður óþekktur heimur opnist þeim er hafa yfir vélsleða að ráða, en það eru öræfi landsins. Með aukn- um frítíma er vélsleðinn bæjar- búum mjög hvetjandi tæki til hollrar tómstundaiðju. Nú býður Þór hf. upp á léttan og lipran en kraftmik- inn sleða, Skimmer 440 árgerð 1976. Þetta er 40 hestafla sleði, sem hlotið hefur góðar mót- tökur. Árgerð 1975 seldist upp strax enda verðið mjög hag- stætt. Skimmer 440 kostar kr. 358.120. Er hann með 15Vz" breiðu belti, höggdeyfum á skíðum, sérstaki'i viðbragðs- dælu, sem gerir hann að hin- um viljuga gæðingi, sem flytur eigandann á örskömmum tíma inn í undraheima óbyggð- anna. Einangrunin er rofin og þess vegna er vélsleðinn allt í senn þarfur, nauðsynlegur og umfram allt skemmtilegur. Vélsleðarnir frá Þór hf. eru mjög auðveldir í notkun og er hægt að flytja þá á tengi- vagni aftan í bifreiðinni eða þá setjast upp í hann við bæj- ardyrnar og aka hvert sem verða vill, þar sem snjór er. SJÁVARFRÉTTIR BLAÐ SJÁVAROTVEGSINS Áskriftar- og auglýsingasímar: 82300- 82302 92 FV 2 1976

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.