Frjáls verslun - 01.04.1977, Síða 43
SantíAamaAnr
Björn Hermannsson tollstjóri:
„Athugasemdir þarf að gera
við meira en 30% af
innlögðum toilskyrslum”
Tollstjóraembættið innheimti í fyrra tæplega
44 milljarða króna eða sem næst 55% af
heildartekjum ríkisins
Björn Hermannsson var skipaður í embætti tollstjóra í janúar 1973. Áður starfaði hann um árabil
í fjármálaráðuneytinu og fjallaði þar einkanlega um tollamál. Frjáls verslun ræddi nýlega við toll-
stjóra um fjölþætt mál er embætti hans varða.
F.V.: — Það virðist vera
nokkuð almenn skoðun, að' toll-
stjóraembættið sé eitt allra
hæstlaunaða starf á landinu og
þá gjaman nefndar tölur um
prósentur af innheimtu því til
stuðnings. Eru þetta munn-
mælasögur einar eða er eitt-
hvað til í þessu?
Tollstjóri: — Já, það er nokk-
uð til í Iþessu. Þetta embætti
hefur verið um fjölda ára og
allt til síðustu áramóta tekju-
hæsta embætti á vegum ríkis-
ins. Því fylgdi sem næst V\%o
(Vi prómille) í innheimtulaun
af nánast öllum innheimtum
tekjum fyrir ríkissjóð. Um síð-
ustu áramót voru lögin, sem
þessi inniheimtulaun grundvöll-
uðust á afnumin. í ár ríkir á
þessu sviði bráðabirgðaástand,
en eftir næstu áramót mun
þetta heyra sögunni til og hvað
þá tekur við er óljóst.
F.V.: — Hvað eru það mikl-
ar fjárhæðir, sem þetta embætti
innheimtir fyrir ríkið, miðað
við árið í fyrra, og hvemig
flokkast gjöldin?
Tollstjóri: — Það voru tæp-
ilega 44 milljarðar, en það er
sem næst 55% af heildartekj-
um ríkissjóðs. Meðaltalsinn-
heimta hvern virkan dag var
hér s.l. ár sem næst 183 millj.
Helstu gjöldin eru söluskattur
(sölugjald) 19 milljarðar, að-
flutningsgjöld 11 milljarðar,
vörugjald af innflutningi 3,1
milljarður, útflutningsgjald
sjávarafurða 2,1 milljarður,
launaskattur 1,8 milljai'ður og
innflutningsgjald af bensíni 1,8
milljarður. Þetta eru sex hæstu
innheimtugjöldin, en alls eru
þau 47 talsins.
F.V.: — Hvað kostar rekstur
Björn Hermannsson, tollstjóri ræðir við Sigvalda Friðgeirsson,
skrifstofustjóra tollsins á skrifstofu hans.
FV 4 1977
43