Frjáls verslun - 01.04.1977, Blaðsíða 96
Ilm heima 03 seima
— Jæja, sástu svo, hvað
Skotarnir geyma undir pilsinu
sínu, þegar þú varst í Glasgow?
— Já, svo sannarlega. Sá,
sem ég hitti, var ekki með neitt
minna en sjálft Loch Ness
skrýmslið, sýndist mér.
Auglýsing í blaðinu Glasgow
Herald: „Notaður legsteinn til
sölu. Hentar bezt manni að
nafni Gregor McPherson."
• - -
— Jæja, gamli vinur. Það er
langt síðan við höfum sézt.
Hvernig líður þér annars?
— Ég má víst fara að labba
aftur?
— Hvað, hefurðu verið veik-
ur?
— Nei, ég missti ökuskírtein-
ið.
Heyrt á læknaráðstefnu:
— Svo ég segi nú frá bezta
sjúklingnum mínum. Hann þjá-
ist af persónuklofa. Ég sendi
honum alltaf tvo reikninga og
fæ þá báða borgaða.
Önnur vika námskeiðsins: „Við
hættum að reykja“.
Það var um kvöld og þröng
við barinn. Með einhverjum
hætti varð Stína Jó vör við að
fálmandi hönd leitaði hægt og
rólega undir pilsið hennar og
upp á hné.
— Þú tekur feil, ungi mað-
ur, sagði Stína hvasst.
— Tek feil. Það á ég bágt
með að skilja. Er þetta ekki
pilsið þitt, kannski?
— • —
— Hvers vegna í ósköpunum
ertu búinn að þekja alla vegg-
ina hjá þér með nöktum kon-
um?
— Ég þoli ekki nakta veggi.
Það var í vetrarstríðinu milli
Rússa og Finna.
Hugdjarfir Finnar laumuðust
inn fyrir víglínuna óvinameg-
in, dulbúnir sem 'kýr. Feldur-
inn var saumaður úr ekta húð
og þeir voru tveir saman, ann-
ar fyrir framlappirnar og haus-
inn en hinn fyrir afturlappirn-
ar og bakhlutann. Skyndilega
hrópaði sá fremri upp yfir sig:
—ÍFlýtum okkur. Nú er það
annað hvort að halda lífi eða
hljóta það, sem er miklu verra
en dauðinn.
— Hafa þá bölvaðir Rússarn-
ir séð okkur?
— Nei, en það hefur tuddinn
gert.
— • —
Þetta gæti bara gerzt í Skot-
landi:
Það var á ölstofu í Edinborg.
Með áberandi viðbjóði fiskaði
ferðamaðurinn upp dauða flugu
úr ölglasinu sínu, sem var næst-
um tómt.
— En sú hræðilega óheppni,
sagði þjónninn. Ég sæki bara
annað glas af öli í grænum
hvelli. Og með miklum tilþrif-
96
FV 4 1977