Frjáls verslun - 01.04.1979, Blaðsíða 8
áfangar
Jón Gauti Jónsson, viöskiptafræöingur, var
ráöinn bæjarstjóri í Garðabæ frá og meö 1. júní
n.k. á fundi bæjarstjórnarinnar síðari hluta
marsmánaðar.
Jón Gauti Jónsson er fæddur á ísafiröi 29.
desember 1945. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1967. Starfaði
hann aö því búnu einn vetur viö kennslustörf í
Iðnskóla og Gagnfræöaskóla Vestmannaeyja.
Nám viö Háskóla íslands hóf hann haustið
1968, og lauk þaðan prófi úr viðskiptadeild
haustiö 1972. Aö námi loknu réðist Jón Gauti
sem sveitarstjóri Búöahrepps í Fáskrúðsfiröi til
1974, en þá varö hann sveitarstjóri Rangár-
vallahreþps og gegndi starfinu til 1978. Eftir
þaö starfaöi Jón Gauti um tíma hjá Scan-
house Ltd. í Lagos í Nígeríu.
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjar-
stjórnar og sér um aö framfylgja samþykktum
hennar. í Garðabæ er bæjarstjórnin skipuð sjö
mönnum.
Helstu framkvæmdir í Garðabæ í sumar
veröur aö steypa upp annan áfanga Garða-
skóla, og er þaö stærsta verkefni bæjarfélags-
ins. Einnig veróur lagt varanlegt slitlag á all-
margar götur víös vegar um bæinn. Þá veröa í
sumar geröar endurbætur á vatnsbóli Garö-
bæinga.
I bæjarstjórn Garðabæjar sitja fjórir fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, einn fulltrúi fyrir Fram-
sóknarflokkinn, einn fulltrúi fyrir Alþýöuflokk
og einn fyrir Alþýöubandalag.
Almar Grímsson, deildarstjóri lyfjamála-
deildar heilbrigöis- og tryggingaráðuneytisins
tók frá og meö 1. apríl s.l. viö starfi deildarstjóra
nýrrar lyfjadeildar í svæðisskrifstofu Alþjóöa
heilbrigöisstofnunarinnar, WHO, í Kaup-
mannahöfn.
— Þessi svæðisskrifstofa þjónar Evrópu,
eöa 32 þjóðum sagði Almar. Lyfjadeildin verður
ráðgefandi deild til samræmingar reglna um
eftirlit með lyfjum og lyfjanotkun í Evrópu.
Deildin er einnig tengiliöur viö aöalstöövar
stofnunarinnar í Genf í sambandi viö verkefni
sem stofnunin vinnur að, viö aö koma upp betri
lyfjadreifingu til fátækra þjóða þriöja heimsins.
— í tengslum við þetta verkefni, sagöi Almar,
verður reynt að fá ríki í Evrópu til aö miöla af
tækniþekkingu og jafnvel gefa lyfjabirgðir til
þeirra þjóöa þriója heimsins sem á þeim þurfa
aö halda.
Almar Grímsson er fæddur 16. apríl 1942 í
Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1960 og kandi-
datsprófi frá lyfjafræðiháskólanum í Kaup-
mannahöfn áriö 1965. Starfaði hann sem lyfja-
fræöingur þar til 1971 er hann tók viö starfi
deildarstjóra lyfjamáladeildar. Næstu tvö árin
hefur Almari veriö veitt leyfi frá störfum í ráöu-
neytinu.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin er ein af sér-
hæföum undirstofnunum Sameinuöu þjóð-
anna. Sagöi Almar aó í hinni nýju lyfjadeild í
svæðisskrifstofunni í Kaupmannahöfn mundi
ekki veröa margt fastráðið starfsfólk, heldur
fengið sérhæft fólk til aö takast á viö ákveöin
einstök verkefni innan deildarinnar.
8